Hákon kom inn af bekknum í tapi FCK gegn Dortmund Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. september 2022 18:35 Hákon Arnar í baráttunni við Niklas Sule í leik dagsins. Lars Baron/Getty Images Íslendingalið FC Kaupmannahöfn mátti þola 3-0 tap er liðið heimsótti Borussia Dortmund í fyrstu umferð riðlakeppninnar í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson byrjuðu báðir á bekknum hjá FCK í leiknum, en Hákon lék seinasta hálftíman eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Það voru þó heimamenn í Dortmund sem voru sterkari aðilinn í leiknum frá upphafi til enda og Marco Reus kom liðinu í forystu á 35. mínútu eftir undirbúning frá Julian Brandt. Raphael Guerreiro tvöfaldaði svo forystu heimamanna stuttu fyrir hálfleikshléið og staðan því 2-0 þegar liðin gegnu til búningsherbergja. Heimamenn gerðu svo endanlega út um leikinn þegar Jude Bellingham skoraði þriðja mark liðsins rúmum fimm mínútum fyrir leikslok og niðurstaðan því 3-0 sigur Dortmund. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla