Myndin verður frumsýnd 8. október á RIFF kvikmyndahátíðinni. Almennar sýningar hefjast svo 14. október. Sýnishorn úr myndinni má finna í spilaranum hér fyrir neðan.
„Ef þú leggur við hlustir þá segir Þorpið þér kannski nokkrar ósagðar sögur. Sögur af forstjóranum unga sem dreymir á latínu og fórnar fjölskyldu og glæstum frama fyrir gamlar bækur og stjörnukíki, heljarmenni sem kiknar undan myrkrinu, fínvöxnum syni hans sem tálgar mófugla. Af bóndanum með bassaröddina sem strengir fallegar girðingar en ræður illa við fýsnir holdsins, einmana gröfukalli sem skellir sér í helgarferð til London og gömlum Dodge 55,“ segir um söguþráð myndarinnar.
Með stærstu hlutverk fara Ólafur Darri Ólafsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Heiða Reed, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Jóhann Sigurðarson, Atli Óskar Fjalarsson, Sigurður Ingvarsson, Kristbjörg Kjeld, Anna María Pitt, Ebba Guðný Guðmundsdóttir, Víkingur Kristjánsson og fleiri.
