Inter hafði betur í stórleik dauðariðilsins Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. október 2022 20:59 Hakan Calhanoglu skoraði markið sem tryggði Inter sigurinn. David S. Bustamante/Soccrates/Getty Images Inter vann afar mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Barcelona í þriðju umferð C-riðils Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Það var Hakan Calhanoglu sem skoraði eina mark leiksins þegar hann kom heimamönnum í 1-0 forystu á annarri mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks. Pedri hélt þó að hann hefði jafnað fyrir gestina þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka, en markið dæmt af vegna brots í sóknaruppbyggingunni eftir skoðun myndbandsdómara. Niðurstaðan varð því 1-0 sigur Inter sem situr nú í öðru sæti dauðariðilsins með sex stig eftir þrjá leiki, þremur stigum á eftir toppliði Bayern München og þremur stigum meira en Barcelona sem situr í þriðja sæti. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla