Erlent

Telur það slæma hugmynd að skipta kjarnorku út fyrir kol

Kjartan Kjartansson skrifar
Greta Thunberg ávarpar þátttakendur í loftslagsmótmælum fyrir utan þýska ríkisdaginn í fyrra. Hún öðlaðist heimsfrægð fyrir svonefnd loftslagsverkföll ungs fólks sem hún stóð fyrir.
Greta Thunberg ávarpar þátttakendur í loftslagsmótmælum fyrir utan þýska ríkisdaginn í fyrra. Hún öðlaðist heimsfrægð fyrir svonefnd loftslagsverkföll ungs fólks sem hún stóð fyrir. AP/Michael Sohn

Sænski umhverfisverndaraðgerðarsinninn Greta Thunberg varar við því að þýsk stjórnvöld loki kjarnorkuverum og framleiði í staðinn raforku með kolum. Til stendur að loka þremur þýskum kjarnorkuverum fyrir árslok á sama tíma og gömul kolaorkuver eru vakin upp frá dauðum.

Töluverð andstaða er gegn kjarnorku í Þýskalandi og hún jókst aðeins eftir kjarnorkuslysið í Fukushima-kjarnorkuverinu í Japan í náttúruhamförunum þar árið 2011. Politico segir að umræða um fresta lokun tveggja kjarnorkuveranna hafi þannig reynst mun eldfimara átakamál en áform ríkisstjórnarinnar um að opna aftur kolaorkuver og greiða eigendum brúnkolaorkuvera milljarða króna til að bregðast við því að Rússar stöðvuðu gassölu til Evrópu vegna stríðsátakanna í Úkraínu.

Kol eru enn verri en olía og gos hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda sem valda hnattrænni hlýnun. Engin slík losun er frá kjarnorkuverum. Þá losnar umtalsvert meiri geislun út í umhverfið frá daglegum rekstri kolaorkuvera en kjarnorkuvera.

Umhverfisverndarsinnar eru ósammála um hvort vegi þyngra: aukin losun gróðurhúsalofttegunda vegna bruna á kolum og olíu sem veldur loftslagsbreytingum á jörðinni eða hættan sem þeir telja stafa af kjarnorku.

Robert Habeck, efnahagsráðherra úr röðum Græningja, sagði nýlega að mögulega yrði tveimur af kjarnorkuverunum þremur ekki lokað fyrr en í apríl. Hann vill þó ekki halda þeim opnum lengur en það af öryggisástæðum. Hann hefur engu að síður samþykkt að opna aftur kola- og olíuknúin orkuver, að sögn AP-fréttastofunnar.

Gripu ummælin á lofti

Þegar Thunberg var spurð út í áform þýsku ríkisstjórnarinnar í sjónvarpsviðtali, sem verður birt í heild sinni í dag, sagði hún það hitamál en að það væri slæm hugmynd að skipta út kjarnorku fyrir kol.

„Það veltur á ýmsu. Ef [kjarnorkuverin] eru þegar opin held ég að það væru mistök að loka þeim og snúa sér að kolum í staðinn,“ svaraði Thunberg þegar hún var spurð hvort að það ætti að loka kjarnorkuverunum þremur um lauð og orkuvandi Evrópuríkja líður hjá.

Þýskir stjórnmálamenn sem eru fylgjandi kjarnorku gripu ummæli Thunberg á lofti, þar á meðal Christian Lindner, fjármálaráðherra úr Frjálsa lýðræðisflokknum. Í því orkustríði sem nú geisi í Evrópu þurfi allt sem getur framleitt orku að vera tengt inn á flutningskerfið.

Umræðan um kjarnorkuna hefur reynst Græningjaflokknum þung í skauti. Simone Peter, fyrrverandi formaður flokksins, segir ekkert vit í ummælum Thunberg þar sem kjarnorkuverin notuðu rússnesk úran og að þau væru ekki lengur gagnleg.

Thunberg sjálf virtist vísa til umræðunnar um ummæli sín í Þýskalandi í tísti í dag. Varaði hún við þeim sem hlusti aðeins á óþægileg skilaboð þegar það henti stefnu þeirra.

„Í baráttunni við þennan vanda skilar það okkur engu að sérvelja suma hluti og taka aðra hluti úr samhengi og hunsað afganginn. Það kyndir aðeins undir menningarstríði,“ tísti Thunberg.

Í þýska sjónvarpsviðtalinu lýsti Thunberg einnig furðu á því að ekki væri lögð áhersla á að hvetja fólk til þess að spara orku í því ástandi sem nú ríkir jafnvel þó að það myndi lækka orkuverð.

„Ég veit að þýska þjóðin ræðir um að spara orku en í Svíþjóð er algerlega bannað að tala um nota minni orku vegna þess að fólk segir „æ, nei, þetta er kommúnismi og svo framvegis“. Þannig er þetta er alveg klikkað,“ sagði Thunberg.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×