Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 13. október 2022 16:45 Bygging Kársnesskóla við Vallargerði sem mygla fannst í og Björg Baldursdóttir, skólastjóri Kársnesskóla. Vísir/Bjarni Einarsson Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði nú á dögunum og hefur tilkynning verið send á foreldra. Myglan kom upp í álmu þar sem fyrsti og þriðji bekkur er til húsa en aðgerðir vegna myglunnar eru nú þegar hafnar. Sex kennslustofur verða rýmdar og voru tvær rýmdar um leið og grunur lék á að um myglu væri að ræða, áður en niðurstöður lágu fyrir.
Í samtali við fréttastofu segist Björg Baldursdóttir, skólameistari Kársnesskóla vera þakklát fyrir hversu hratt hefur verið brugðist við niðurstöðunum. Mygla fannst í gömlu byggingu Kársnesskóla við Skólagerði fyrir nokkrum árum síðan og hann rifinn í kjölfarið. Ný bygging Kársnesskóla er í þann mund að rísa við Skólagerði og vonast skólameistari til þess að kennsla geti hafist þar haustið 2023. Björg segir fjögur eða fimm sýni hafa verið tekin í kennslustofum húsnæðisins við Vallargerði þegar kennarar létu vita af versnandi loftgæðum. Loftgæðin hafi mælst góð á sumum stöðum en verri annars staðar. Ákveðið hafi verið að rýma sex kennslustofur þrátt fyrir að mygla hafi aðeins fundist í einu sýni, það hafi verið gert til þess að ganga úr skugga um að öryggi nemenda og kennara væri gætt. Mygluna segir hún hafa fundist í gluggasyllu við útvegg. Hún segir kennara og skólastjórnendur vera nokkuð brennd vegna fyrri reynslu. Viðgerðum verði lokið um áramót og þau vonist til þess að allir verði komnir á sinn stað um miðjan desember. „Þegar maður er í svona eldra húsnæði þá veit maður að það þarf að halda þessu við og maður veit aldrei. Það er svona finnst mér verið að birgja brunninn og ég er mjög glöð að þetta sé gripið strax,“ segir Björg. Hún segir niðurstöður sýnatöku komið í þessari viku og búið sé að koma nemendum fyrir á nýjum stöðum á skólasvæðinu þar sem þau geta verið tímabundið. Frístundin sé til dæmis notuð til kennslu ásamt myndmenntarstofu. Ganginum sem þarf að laga hefur verið lokað í heild sinni. Þetta valdi auðvitað einhverjum óþægindum en kennslan verði ekki fyrir raski og gengið sé úr skugga um að truflunin verði sem allra minnst. Sjötíu til níutíu börn hafi verið færð til innan skólans vegna ástandsins. Kennsla á nýjum stöðum hefst eftir helgi. Björg segir að auðvitað vilji enginn lenda í þessari stöðu en hún sé þakklát fyrir hversu hratt sé unnið úr málunum. „Það eru allir sammála um það held ég hérna innanhúss að við erum mjög ánægð með að þetta skuli gerast svona hratt. Við erum ekki látin bíða eða sett aftast í röðina heldur voru menn komir og átti bara að gera þetta einn, tveir og þrír og við erum tilbúin. Það er ljósið finnst mér í annars leiðinlegri stöðu,“ segir Björg.
Kópavogur Mygla Skóla - og menntamál Grunnskólar Tengdar fréttir Niðurrif á áætlun eftir tafir vegna kæru Niðurrif á Kársnesskóla í Kópavogi mun klárast í janúar og er á áætlun samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ. Í upphafi var áætlað að verklok yrðu 31. ágúst en kærumál tafði það að niðurrifið gæti hafist. 19. desember 2018 13:15 Vilja að Kársnesskóli verði rifinn Starfshópur um húsnæðismál Kársnesskóla í Kópavogi vill að skólinn verði rifinn vegna myglu. Bæjarstjórn Kópavogs hittist á þriðjudaginn til að taka ákvörðun um hvort sú leið verði farin. Um fimmtán hundruð milljónir kostar að reisa nýtt hús. 10. júní 2017 13:16 Útbúa kennslustofur í bæjarstjórnarsal Kópavogs vegna rakaskemmda Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa í samráði við skólastjórnendur í Kársnesskóla ákveðið að flytja nemendur úr vesturálmu hússins á meðan á viðgerð vegna rakaskemmda í byggingu skólans stendur yfir. 22. febrúar 2017 20:28 Mygla í tveimur nýuppgerðum stofum og skólanum lokað Verið er að setja upp kennslutöflu, skjávarpa og annan kennslubúnað í matsal vestast á skólalóð Kársnesskóla. 21. apríl 2017 15:42 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Sjá meira
Niðurrif á áætlun eftir tafir vegna kæru Niðurrif á Kársnesskóla í Kópavogi mun klárast í janúar og er á áætlun samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ. Í upphafi var áætlað að verklok yrðu 31. ágúst en kærumál tafði það að niðurrifið gæti hafist. 19. desember 2018 13:15
Vilja að Kársnesskóli verði rifinn Starfshópur um húsnæðismál Kársnesskóla í Kópavogi vill að skólinn verði rifinn vegna myglu. Bæjarstjórn Kópavogs hittist á þriðjudaginn til að taka ákvörðun um hvort sú leið verði farin. Um fimmtán hundruð milljónir kostar að reisa nýtt hús. 10. júní 2017 13:16
Útbúa kennslustofur í bæjarstjórnarsal Kópavogs vegna rakaskemmda Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa í samráði við skólastjórnendur í Kársnesskóla ákveðið að flytja nemendur úr vesturálmu hússins á meðan á viðgerð vegna rakaskemmda í byggingu skólans stendur yfir. 22. febrúar 2017 20:28
Mygla í tveimur nýuppgerðum stofum og skólanum lokað Verið er að setja upp kennslutöflu, skjávarpa og annan kennslubúnað í matsal vestast á skólalóð Kársnesskóla. 21. apríl 2017 15:42