Real Madrid í toppsætið á Spáni eftir sigur í El Clásico

Atli Arason skrifar
Federico Valverde og Karim Benzema fagna marki þess fyrrnefnda gegn Barcelona í dag.
Federico Valverde og Karim Benzema fagna marki þess fyrrnefnda gegn Barcelona í dag. Getty Images

Real Madrid vann 3-1 sigur á Barcelona í uppgjöri toppliða spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Karim Benzema kom Real á bragðið með marki strax á 12. mínútu leiksins áður en Federico Valverde gerði annað mark Real á 35. mínútu og Real leiddi með tveimur mörkum gegn engu í hálfleik.

Ferran Torres, leikmanni Barcelona, tókst að gera lokamínútur leiksins spennandi þegar hann minnkaði muninn í 2-1 með marki á 83. mínútu eftir undirbúning Ansu Fati.

Barcelona þjarmaði svo að heimamönnum í Real síðustu mínútur leiksins en það fór ekki betur en svo að gestirnir voru fámennir í vörninni og skyndisókn Real á 91. mínútu endaði á því að Eric García braut á Rodrygo innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Rodrygo tók spyrnuna sjálfur og setti knöttinn í netið framhjá Marc-Andre ter Stegen, markverði Barcelona.

Lokatölur voru því 3-1 fyrir Real sem er nú eitt í efsta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 25 stig, þremur stigum meira en Barcelona sem er í 2. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira