Innherji

Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði

Hörður Ægisson skrifar
Verðlækkun bréfanna í viðskiptunum í morgun endurspeglar væntingar um að eigendur þeirra þurfi að taka á sig veruleg afföll – líklegast meira en 100 milljarða króna – eftir að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, boðaði að ÍL-sjóður yrði settur í slitameðferð með sérstakri lagasetningu.
Verðlækkun bréfanna í viðskiptunum í morgun endurspeglar væntingar um að eigendur þeirra þurfi að taka á sig veruleg afföll – líklegast meira en 100 milljarða króna – eftir að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, boðaði að ÍL-sjóður yrði settur í slitameðferð með sérstakri lagasetningu.

Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna.


Tengdar fréttir

Líf­eyr­is­sjóð­ir þurf­a að „taka á sig högg“ vegn­a slit­a á ÍL-sjóð­i

Fá sjónarhóli ríkisins er skiljanlegt að vilja leysa upp ÍL-sjóð og stöðva þá blæðingu úr ríkisfjármálunum vegna hans sem annars er fyrirsjáanleg næstu tvo áratugina. Lánardrottnar ÍL-sjóðs, að langstærstum hluta lífeyrissjóðir en einnig verðbréfasjóðir, fjármálafyrirtæki og einstaklingar, munu þurfa að taka á sig högg hvort sem gengið verður til samninga um uppgjör skuldanna eða sjóðnum slitið einhliða af ríkinu í kjölfar lagasetningar. Þetta segir aðalhagfræðingur Íslandsbanka.

Fjár­­­mála­ráð­herra segir Þor­björgu Sig­ríði fara með rangt mál

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttir þingmann Viðreisnar ranglega halda því fram að hann hafi lengi borið ábyrgð á málefnum ÍL-sjóðs. Hið rétta sé að málið hafi komið í hans hlut árið 2020 og hann sé að leggja fram góða lausn, sem geti sparað tugi milljarða, nái tillagan fram að ganga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×