Bannað að mæta á leikinn við Alfons og félaga eftir lætin gegn Arsenal Sindri Sverrisson skrifar 27. október 2022 13:32 Stuðningsmenn PSV Eindhoven eru hér á Emirates-leikvanginum. Þar voru þeir ekki til fyrirmyndar og mega ekki mæta til Noregs, auk þess sem PSV fékk sekt. Getty/Joris Verwijst UEFA hefur ákveðið að refsa hollenska knattspyrnufélaginu PSV Eindhoven með áhorfendabanni og sekt vegna óláta stuðningsmanna félagsins á heimavelli Arsenal í síðustu viku.
Stuðningsmenn PSV köstuðu hlutum til, sköpuðu óróa á meðal áhorfenda og unnu skemmdir á leikvangi Arsenal, í 1-0 tapinu gegn Arsenal í Evrópudeildinni þar sem Granit Xhaka skoraði sigurmarkið á 70. mínútu. UEFA ákvað að refsa fyrir þetta með 40.000 evra sekt, sem jafngildir 5,7 milljónum króna, auk þess að banna PSV að selja miða á næsta útileik sinn í Evrópudeildinni. Þá hefur PSV þrjátíu daga til að borga Arsenal skaðabætur vegna þeirra skemmda sem unnar voru. Næsti útileikur PSV er gegn Bodö/Glimt, liði Alfons Sampsted, í Noregi í næstu viku. Áður en að þeim leik kemur spilar PSV hins vegar á heimavelli sínum gegn Arsenal síðdegis í dag, á meðan að Bodö/Glimt sækir Zürich heim. Ef að Bodö fær ekki færri stig en PSV í dag verður leikur liðanna í Noregi í næstu viku úrslitaleikur um að fylgja Arsenal upp úr riðlinum.
Evrópudeild UEFA Fótbolti Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Fleiri fréttir Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Sjá meira