Viktor varði vel í stórsigri gegn Kiel Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2022 20:19 Viktor Gísli Hallgrímsson stóð vaktina vel í marki Nantes í kvöld. Getty/Nikola Krstic Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti flottan leik fyrir franska félagið Nantes er liðið vann öruggan átta marka sigur gegn þýska stórliðinu Kiel í Meistaradeild Evrópu í kvöld, 38-30.
Jafnræði var með liðunum á upphafsmínútum leiksins og staðan var enn jöfn,10-10, þegar fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður. Þá tóku heimamenn í Nantes hins vegar völdin á vellinum og náðu fimm marka forskoti áður en flautað var til hálfleiks, en staðan var 20-15 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Heimamenn juku forskot sitt hratt í síðari hálfleik og náðu mest 13 marka forystu í stöðunni 35-22. Gestirnir í Kiel voru aldrei nálægt því að brúa það bil og niðurstaðan varð átta marka sigur Nantes, 38-30. Viktor Gísli átti sem áður segir flottan leik í marki Nantes í kvöld og varði 15 af þeim 43 skotum sem hann fékk á sig, en það gerir rétt tæplega 35 prósent hlutfallsmarkvörslu. Nantes situr nú í 2.-3. sæti B-riðils með átta stig eftir fimm leiki, líkt og Lomza Kielce, lið Hauks Þrastarsonar sem vann góðan sigur gegn Celje Lasko fyrr í kvöld. Kiel situr hins vegar í fimmta sæti riðilsins með fjögur stig.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Öskjuhlíð Sport Bakgarður 101: „Ætla að níðast á þessum líkama og sjá hvað hann getur“ Sport Annað dauðsfall í CrossFit keppni Sport Vill að Arsenal neiti að standa heiðursvörð fyrir Liverpool Enski boltinn „Heyrðu, það þarf einhver að skutla syni okkar á leikskólann“ Sport Setti heimsmet en þarf ekki Sveindís Jane að fá að reyna næst? Fótbolti „Einu skrefi nær því að verða næsti Sir Alex Ferguson“ Íslenski boltinn Sex rallýgoðsagnir teknar inn í nýjustu frægðarhöllina á Íslandi Sport Bakgarður 101: Heilagir hringir hjá biskup Íslands Sport Guðni Eiríksson: Markmannstaðan á Íslandi er ekki nógu góð Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Þórir ráðinn til HSÍ Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita Fram á lífi eftir sigur gegn Haukum Stjarnan áfram í Olís deildinni Íslandsmeistararnir örugglega í úrslit Haukur meistari í Rúmeníu „Verður svakalegur leikur“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita