Bein útsending: Rannsóknaþing og Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs Rannís 24. nóvember 2022 10:30 Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís. Valgarður Gíslason Í dag fer fram Rannsóknaþing og afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs. Þingið ber yfirskriftina: Þekking í þágu samfélags – Áhrif rannsókna á íslandi og verður meðal annars fjallað um áhrifamat á Rannsóknasjóði sem ráðuneyti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar lét gera og gefið var út nýlega. „
Rannsóknasjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknatengt framhaldsnám á Íslandi, hvort sem það er á sviði grunnrannsókna eða hagnýtra rannsókna,“ segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, sem mun stýra rannsóknaþinginu sem hefst klukkan 14 í dag og haldið er á Hilton Reykjavík Nordica. Meðal þess sem kemur fram í áhrifamatinu er að Rannsóknasjóður sé ómissandi fyrir íslenskt vísindasamfélag þar sem styrkir úr sjóðnum eru álitnir sem mikilvægt fyrsta skref við upphaf rannsókna og auki möguleika styrkþega á að sækja erlenda styrki í kjölfarið. „Því betur sem við getum stutt við rannsóknir með sjóðum á borð við Rannsóknasjóð því öflugra þekkingarsamfélag sköpum við hér á landi. Rannsóknir gegna samfélagslegu, menningarlegu og efnahagslegu hlutverki, þær stuðla að aukinni þekkingu, lífsgæðum og hagsæld og getu okkar til að takast á við áskoranir í íslensku samfélagi. Það er þó ekki síður mikilvægt að áhrifum rannsókna sé miðlað á fjölbreyttan hátt og kveikja þannig áhuga samfélagsins á rannsóknum og vísindum,“ segir Ágúst. Ein slík miðlunarleið, sem verður einnig til umfjöllunar á þinginu, er gagnagrunnurinn IRIS en það er kerfi sem birtir rannsóknavirkni og samfélagslega dreifingu þekkingar við rannsóknir. „IRIS gagnagrunnurinn er virkilega mikilvægur þáttur í því að miðla rannsóknum á Íslandi og gera umfang og áhrif þeirra sýnilegri. Aðilar að kerfinu eru meðal annars íslensku háskólarnir og stofnanir á Íslandi sem sinna fjölbreyttum rannsóknum. IRIS var hleypt af stokkunum fyrr á árinu og við bindum miklar vonir til þess að kerfið verði, á næstu árum, enn öflugri gagnagrunnur um umfang og áhrif rannsókna á Íslandi,“ segir Ágúst. Aðspurður um hvað Ágúst vilji sjá sem útkomuna af rannsóknaþingi segir hann fyrst og fremst vilja sjá lifandi og gott samtal þátttakenda um enn frekari eflingu á íslensku rannsókna- og hugvitssamfélagi sem styðji við íslenskt samfélag og árangur þess til framtíðar. „En við ætlum ekki eingöngu að ræða saman á þinginu. Við viljum líka staldra við og verðlauna það sem vel er gert í vísindasamfélaginu og það gerum við með því að veita Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1987 og eru veitt vísindamanni sem, snemma á ferlinum, þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem treysti stoðir mannlífs á Íslandi,“ segi Ágúst og hvetur að lokum öll, sem ekki sjá sér fært að mæta, til að fylgjast með þinginu í beinu streymi. Rannsóknaþing fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og hefst klukkan 14 Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan. Útsendingin hefst klukkan 14 og er tæplega tvær klukkustundir. Dagskrá: Setning Rannsóknaþings Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Áhrifamat Rannsóknasjóðs Dr. Katrín Frímannsdóttir, stefnu- og gæðastjóri við Háskóla Íslands IRIS Rannsóknagátt fyrir Ísland Sara Stef. Hildardóttir, verkefnastjóri rannsóknarþjónustu og opins aðgangs hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni Stuðningur við hugvitssamfélagið Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís Þekking í þágu samfélags: Áhrif rannsókna á Íslandi – Pallborðsumræður Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Dr. Katrín Frímannsdóttir, stefnu- og gæðastjóri við Háskóla Íslands Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs Kristján Leósson, formaður dómnefndar, gerir grein fyrir störfum dómnefndar. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs afhendir verðlaunin.
Tækni Vísindi Nýsköpun Mest lesið „Ég var búin að heyra stríðsögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Atvinnulíf Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Áhersla á öryggi viðskiptavina Eftirvagnar breyta aksturseigileikum bílsins Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn Hægt að tilkynna holur á vegum á vegbót.is – FÍB er alltaf á vaktinni Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Bílaumboðið Una skrifar undir samning við XPENG Skelltu þér í sólina í sumar Nýjungar á Hótel Grímsborgum Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Brimborg lækkar verð á Polestar Iðnaðarmaður ársins 2024 er fundinn Ofursmart heilsárshús Glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni Ný leið fyrir fyrirtæki til að rafvæða bílaflotann Toyota fagnar sumrinu á laugardag Þú þarft ekki að óttast rigninguna Eitt glæsilegasta byggingarsvæði höfuðborgarsvæðisins Sjá meira