Ýmir og félagar höfðu betur gegn lærisveinum Guðjóns Vals Smári Jökull Jónsson skrifar 1. desember 2022 18:52 Ýmir og félagar eru í þriðja sæti deildarinnar. Vísir/Getty Rhein-Neckar Löwen vann góðan útisigur á Gummersback í þýska handboltanum í dag. Ýmir Örn Gíslason lék í vörn Löwen og þeir Elliði Snær Viðarsson og Hákon Daði Styrmisson voru í liði Gummersbach.
Fyrir leikinn í dag var Rhein-Neckar Löwen í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar en Gummersbach, sem eru nýliðar í deildinni og undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, í níunda sætinu. Heimamenn í Gummersbach byrjuðu betur í dag og komust í 3-1 strax í upphafi en Rhein-Neckar tók síðan frumkvæðið og leiddi með einu til tveimur mörkum fram að hálfleik en þá var staðan 18-16 gestunum í vil. Síðari hálfleikur þróaðist á svipaðan hátt til að byrja með. Rhein-Neckar Löwen var skrefinu á undan, komst í þriggja marka forskot í stöðunni 25-22 en Gummersbach skoraði þá fjögur mörk í röð og komst í 26-25. Gestirnir í Rhein-Neckar voru hins vegar sterkari á lokasprettinum. Þeir breyttu stöðunni úr 28-27 fyrir Gummersbach yfir í 31-28 sér í vil og það bil náðu heimamenn ekki að brúa. Lokatölur 32-29 og Ýmir Örn og félagar því áfram í þriðja sæti deildarinnar. Ýmir Örn komst ekki á blað hjá Rhein-Neckar í dag en lét til sín taka í vörninni og var einu sinni rekinn út af í tvær mínútur. Hákon Daði Styrmisson átti fínan leik fyrir Gummersbach og skoraði fimm mörk úr sex skotum og þá skoraði Elliði Snær Viðarsson eitt mark auk þess að spila varnarleikinn af krafti.
Þýski handboltinn Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira