Ótrúlegt mark Ómars vekur athygli Valur Páll Eiríksson skrifar 8. desember 2022 10:00 Ómar Ingi Magnússon skoraði afar laglegt mark í gær, sem var eitt af ellefu sem hann skoraði í leiknum. Vísir/Getty Ómar Ingi Magnússon er í hörkuformi fyrir komandi heimsmeistaramót þar sem Ísland hefur leik eftir rúman mánuð. Glæsimark hans í Meistaradeildinni í gærkvöld hefur vakið athygli.
Ómar Ingi og liðsfélagi hans Gísli Þorgeir Kristjánsson fóru mikinn í sigri liðs þeirra Magdeburgar á dönsku meisturunum GOG í gær. Leikar enduðu 36-34 fyrir þýska liðið sem er með tólf stig í þriðja sæti A-riðils Meistaradeildarinnar en GOG er með sjö stig í því fimmta. Gísli Þorgeir skoraði átta mörk í leiknum, þar af sex í fyrri hálfleik, en Ómar Ingi skoraði ellefu og lagði fimm upp að auki. Eitt þeirra marka Ómars kom þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af leiknum er hann skrúfaði boltann framhjá markmanni GOG úr afar þröngri stöðu. Markið má sjá að neðan en það hefur vakið verðskuldaða athygli á samfélagsmiðlum. ÓMAR INGI MAGNUSSON! Do we need to say more? Incredible! #ehfcl @SCMagdeburg pic.twitter.com/Fsh8Eo3TET— EHF Champions League (@ehfcl) December 7, 2022 Ómar hefur verið í hörkuformi að undanförnu og verður að öllum líkindum fastamaður í íslenska landsliðinu sem hefur leik á HM þann 12. janúar. Ísland er þar í erfiðum riðli ásamt Portúgal, Ungverjalandi og Suður-Kóreu.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira