Prinsinn og fasteignamógúllinn sem vildi steypa þýsku stjórninni Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2022 07:16 Hinrik XIII í lögreglubíl eftir að hafa verið handtekinn í Frankfurt á miðvikudagsmorgun. Getty Um fátt annað hefur verið talað í Þýskalandi síðustu daga en áætlanir hreyfingar hægri öfgamanna um valdarán með því að ráðast inn í þýska þinghúsið, taka þar fólk í gíslingu, koma ríkisstjórninni frá og koma á nýrri stjórnskipan. Höfuðpaurinn er sagður maður af þýskum aðalsættum, Hinrik XIII prins.
Fréttir bárust af því fyrr í vikunni að lögregla í Þýskalandi hefði staðið fyrir umfangsmiklum, samræmdum aðgerðum víðs vegar um landið og handtekið 25 manns og gert húsleit á rúmlega 130 stöðum. Vonir höfðu staðið til að handtaka 52, en einnig voru einhverjir handteknir í Austurríki og Ítalíu. En hver er þessi maður – prinsinn – sem er sagður hafa séð fyrir sér að kollvarpa því Þýskalandi sem við þekkjum? Deutsche Welle segir frá því að fyrir rúmum hundrað árum hafi forfeður Hinriks XIII, prins af Reuss, haft tögl og hagldir á landsvæði sem nær að stórum hluta yfir því sem við þekkjum sem Þýringaland (þ. Thüringen). „Kynnist manninum sem vildi verða keisari Þýskalands,“ segir Dietmar Bartsch, formaður Vinstriflokksins, Die Linke, í hæðnistón um prinsinn og deilir af honum mynd eftir að sá hafði verið handtekinn á miðvikudag. Heinrich XIII Prinz Reuß, der Mann, der deutscher Kaiser werden wollte. pic.twitter.com/lAldvniV37— Dietmar Bartsch (@DietmarBartsch) December 7, 2022 Viðurkenna ekki lögmæti Þýskalands Þeir sem handteknir voru fyrr í vikunni tengjast Reichsbürger-hreyfingunni og er áætlað að liðsmenn hennar telji um 21 þúsund. Liðsmenn hreyfingarinnar viðurkenna ekki lögmæti ríkisstjórnar landsins, þingsins og þýska sambandslýðveldisins sem varð til eftir fyrra stríð og Wilhelm II keisara var bolað frá. Vilja þeir meina að Þýskaland nútímans sé lénsríki bandamanna í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og þjóni hagsmunum þeirra. Myndir náðust af því þegar lögreglumenn leiddu hinn 71 árs gamla Hinrik XIII á brott í handjárnum í Frankfurt síðastliðinn miðvikudag. Hinrik ver mestum tíma sínum í Frankfurt þar sem fasteignafélag hans er með höfuðstöðvar og svo í fjallakofa sínum í Þýringalandi. Er í raun um að ræða kastala sem reistur var á nítjándu öld í nýgotneskum stíl nærri Bad Lobenstein. Segir í þýskum fjölmiðlum að það sé í þeim kastala þar sem hann hafi tekið á móti og fundað með liðsmönnum Reichsbürger-hreyfingarinnar. Við kofa prinsins er einnig að finna golfvöll sem kenndur er við Reuss-fjölskylduna. Hinrik leiddur á brott.AP Reiðilestur á ráðstefnu í Zürich 2019 Hinrik kom fram á ráðstefnu World Web Forum í Zürich í Sviss árið 2019 þar sem hann ræddi meiningar sínar um Þýskaland. Yfirskrift erindisins var „Hvernig elíta með blátt blóð varð að þjónum“. Í ræðunni, sem stóð í um fimmtán mínútur, sagði hann að þar sem ekki hafi verið gerður friðarsamningur við lok seinni heimsstyrjaldarinnar þá væri lagagrundvöllur hins nýja Þýskalands enginn. Hélt hann svo áfram þar sem hann lét nokkur miður falleg orð um gyðinga falla – hvernig gyðingar í bankaheiminum hafi átt þátt í að afnema konungsveldið. Sagði hann svo að eina rökrétta skrefið í stöðunni væri að hverfa aftur til þess stjórnskipulags sem var í Þýskalandi fyrir rúmri öld þar sem keisari var við völd og sem hafi verið komið frá „gegn vilja þjóðarinnar“. Þeir sem viðstaddir voru ræðuna lýstu þá margir vanþóknun sinni með því að yfirgáfu salinn eða þá með því að púa manninn í ræðupúltinu. Í frétt NBC kemur fram að á árum áður hafi fólk leitað til prinsins þegar eitthvað var ekki í lagi. „Til hvers á að leita núna? Þingmanns? Á sveitarstjórnarstigi, þjóðþingi eða Evrópuþingi? Gangi þér vel!“ Í lok ræðunnar sagði hann að Þýskaland hafi í raun ekki verið fullvalda eftir seinna stríð. Hinriki hafði verið boðið að flytja ræðuna á ráðstefnunni, sem margir leiðtogar í pólitík, viðskiptum og tæknigeiranum sækja, eftir að annar ræðumaður hafði boðað forföll á síðustu stundu. Áhugamaður um akstursíþróttir Hinrik XIII er giftur fyrirsætu af írönskum uppruna, Susan Doukht Jalali sem gengur nú undir nafninu Susan prinsessa, og er hann sagður mikill áhugamaður um akstursíþróttir. Hann hefur um árabil barist fyrir því að endurbætur verði unnar á grafhýsi fjölskyldu sinnar í bænum Gera. Hinrik á fimm systkini og hafa þau öll sóst eftir bótum frá þýska ríknu fyrir að hafa tekið menningarminjar og listaverk eignarnámi frá fjölskyldunni. Hinrik hefur einnig leitað til dómstóla og þannig reynt að endurheimta land og eignir sem hann segir rétt sem hann hafi verið borinn til. Sú barátta hefur þó engum árangri skilað og hefur hann sagt dómskerfið hafa unnið skipulega gegn sér og sínum. Á síðustu árum á hann svo að hafa unnið að því að koma upp hreyfingu með það að markmiði að steypa þýsku stjórninni. Í hreyfingunni hafi verið að finna fyrrverandi og núverandi hermenn, sumir háttsettir, og lögreglumenn. Í hópi hinna handteknu fyrr í vikunni var einnig að finna fyrrverandi dómara og fyrrverandi þingmann Valkosts fyrir Þýskalandi, AfD. Í þýskum fjölmiðlum kemur fram að fjölskylda Hinriks hafi snúið baki við honum síðasta sumar. Var haft eftir talsmanni Reuss-fjölskyldunnar nú að Hinrik XIII væri ruglaður maður gefinn fyrir varasamar samsæriskenningar. Fjölskyldan hafi hins vegar ekki haft hugmynd um að Hinrik væri höfuðpaurinn í hreyfingu hægri öfgamanna. Hinrik XIII yrði þjóðhöfðinginn Saga Reuss-ættarinnar nær um sjö hundruð ár aftur í tímann. Eftir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar, þegar fyrsta lýðræðislega stjórnarskrá Þýskalands tók gildi, var konungsdæmið afnumið, sem og sérstök forréttindi aðalsmanna. Þessi staðreynd virðist hafa staðið sérstaklega í prinsinum. Bæði karlar og konur voru í hópi hinna handteknu fyrr í vikunni og eru flestir þýskir ríkisborgarar. Eru þau sögð hafa teiknað upp hvernig þau sæju fyrir sér stjórnskipan Þýskalands þegar búið væri að steypa stjórninni. Í þeirri stjórnskipan yrði Hinrik þjóðhöfðingi – keisarinn. Í hópi hinna handteknu er rússnesk kona, Vitalia B. sem er sökuð um að hafa haft milligöngu um tengsl milli hreyfingarinnar og fulltrúa rússneskra stjórnvalda. Sendiráð Rússa í Berlín neita því þó að tengjast á nokkurn hátt Vitaliu.
Þýskaland Fréttaskýringar Tengdar fréttir Þjóðverjar búast við fleiri handtökum Lögregluþjónar víðsvegar um Þýskaland leita nú manna og kvenna sem talin eru hafa komið að ráðabruggi um að taka þingmenn í gíslingu og mynda nýja ríkisstjórn þar í landi. Minnst 25 voru handteknir vegna hinnar meintu valdaránstilraunar en þar á meðal er maður sem kallar sig prins og ætlaði að taka völdin og fyrrverandi þingmaður og dómari. 8. desember 2022 15:30 Vildu koma prins til valda í Þýskalandi Fólkið sem handtekið var í Þýskalandi í morgun og er grunað um skipulagningu valdaráns ætlaði að reyna að koma manni úr gamalla þýskri konungsætt til valda. Sá heitir Hinrik XIII P.R. en annar maður sem heitir Ruediger v.P. átti að leiða herafla hins nýja Þýskalands. 7. desember 2022 12:08 25 handteknir í Þýskalandi grunaðir um skipulagningu valdaráns Lögregla í Þýskalandi hefur í morgun handtekið 25 liðsmenn þýsku Reichsbürger-hægriöfgahreyfingarinnar vegna gruns um skipulagningu valdaráns. 7. desember 2022 07:37 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Sjá meira
Þjóðverjar búast við fleiri handtökum Lögregluþjónar víðsvegar um Þýskaland leita nú manna og kvenna sem talin eru hafa komið að ráðabruggi um að taka þingmenn í gíslingu og mynda nýja ríkisstjórn þar í landi. Minnst 25 voru handteknir vegna hinnar meintu valdaránstilraunar en þar á meðal er maður sem kallar sig prins og ætlaði að taka völdin og fyrrverandi þingmaður og dómari. 8. desember 2022 15:30
Vildu koma prins til valda í Þýskalandi Fólkið sem handtekið var í Þýskalandi í morgun og er grunað um skipulagningu valdaráns ætlaði að reyna að koma manni úr gamalla þýskri konungsætt til valda. Sá heitir Hinrik XIII P.R. en annar maður sem heitir Ruediger v.P. átti að leiða herafla hins nýja Þýskalands. 7. desember 2022 12:08
25 handteknir í Þýskalandi grunaðir um skipulagningu valdaráns Lögregla í Þýskalandi hefur í morgun handtekið 25 liðsmenn þýsku Reichsbürger-hægriöfgahreyfingarinnar vegna gruns um skipulagningu valdaráns. 7. desember 2022 07:37