Lífið samstarf

Sælkerabúðin bjargar jólunum – jólamaturinn klár með einum smelli

Sælkerabúðin

„Við skulum sjá um jólamatinn, slappið þið bara af. Það er yfirleitt einn sem stendur í ströngu á aðfangadag í eldhúsinu og nýtur ekki kvöldsins til fulls. Við viljum einfalda þeim lífið. Hjá okkur er hægt að panta bæði staka aðalrétti eða meðlæti eða allan pakkann, forrétt, aðalrétt og eftirrétt, fyrir eins marga og þarf. Við tökum við pöntunum til 23. desember,“ segir Hinrik Örn Lárusson, eigandi Sælkerabúðarinnar.

Sælkerabúðin er vefverslun vikunnar á Vísi og er hægt að panta veislumatinn á netinu og sækja í verslun en Sælkerabúðin er til húsa á Bitruhálsi 2 og í Hagkaup í Kringlunni og Garðabæ.

„Wellingtonsteik með öllu tilheyrandi er vinsælasti pakkinn okkar, við útbúum líklega einhver tonn af henni fyrir hatíðarnar,“ segir Hinrik en allur matur er útbúinn af matreiðslumönnum Sælkerabúðarinnar. „Það er einnig hægt að panta hamborgarhrygg, hangikjöt eða lambalæri.

 Þetta er allt hægt að panta í stökum einingum líka ef fólk vill sjá um meðlætið sjálft en nýta sér þægindin í að fá kjötið tilbúið. Við erum líka afar liðlegir gagnvart séróskum, kunnum ekki að segja nei og reynum að mæta öllum óskum sem koma upp,“ segir Hinrik. Sælkerabúðin sé komin í sannkallað jólaskap.

„Þetta eru þriðju jólin sem við bjóðum upp á þessa þjónustu en við stofnuðum Sælkerabúðina í maí 2019. Við erum líka með allt í jóalhlaðborðið, allskonar stórsteikur og mikið úrval af jólakörfum líka sem allt er hægt að kaupa á netinu. Við hvetjum fólk líka til að kíkja til okkar í búðina og skoða úrvalið þar,“ segir Hinrik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.