Innlent

Haraldur maður ársins hjá lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haraldur Þorleifsson með viðurkenninguna.
Haraldur Þorleifsson með viðurkenninguna. bylgjan

Haraldur Ingi Þorleifsson er maður ársins 2022 að mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Valið var kunngjört í þættinum Reykjavík árdegis á Bylgjunni rétt í þessu.

Haraldur hlaut mjög sterka kosningu og greinilegt að hann hefur snert landsmenn með framtaki sínu á árinu. Haraldur hefur barist fyrir bættu aðgengi fólks með fötlun. Þar ber hæst verkefnið Römpum upp Ísland. Þá hefur hann aðstoðað þolendur kynferðisofbeldis.

Rúmlega tuttugu þúsund atkvæði voru greidd í kjörinu í ár. Svo fór að Haraldur Ingi hlaut 5649 atkvæði en næstur á hæla honum var Vilhjálmur Ingi Sigurðsson, fastagestur á Benzin-café við Grensásveg, með 3512 atkvæði. Vilhjálmur Ingi óð fótbrotinn inn í brennandi strætisvagn, slökkti eldinn og leiddi farþega út úr vagninum.

Arnór Ingi Davíðsson fjórtán ára drengur og efnilegur knattspyrnukappi úr Hveragerði varð í þriðja sæti með 2471 atkvæði. Arnór Ingi sýndi mikið snarræði og hárrétt viðbrögð þegar hann bjargaði tíu ára bróður sínum úr snjóflóði sem féll við hlíðar Hamarsins í Hveragerði þar sem þeir voru að leika sér á sleða.

Haraldur var til viðtals á Bylgjunni þar sem hann tók á móti verðlaununum:

Fyrri verðlaunahafar:

  • 2009 Edda Heiðrún Backman
  • 2010 Þórður Guðnason
  • 2011 Mugison
  • 2012 Eiríkur Ingi Jóhannsson
  • 2013 Heilbrigðisstarfsmaðurinn
  • 2014 Tómas Guðbjartsson
  • 2015 Þröstur Leó Gunnarsson
  • 2016 Karlalandsliðið í knattspyrnu
  • 2017 Grímur Grímsson
  • 2018 Bára Halldórsdóttir
  • 2019 Björgunarsveitarmaðurinn
  • 2020 Heilbrigðisstarfsmaðurinn
  • 2021 Guðmundur Felix Grétarsson

Tengdar fréttir

Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2022

Vísir og Reykjavík síðdegis standa fyrir vali á manni ársins 2022 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þá manneskju sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Tæplega átján hundruð tilnefndu á Vísi og nokkur fjöldi til viðbótar í símatíma Reykjavík síðdegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×