Reykjavík síðdegis

Fréttamynd

Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn

Á þriðja tug kvenna kusu að fæða án aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi á árunum 2022 til 2025. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands telur aukinn fjölda mæðra sem kjósa þessa leið vera tilkominn vegna áhrifa frá Bandaríkjunum þar sem konur þurfa að borga fyrir aðkomu ljósmæðra. Þá hafi hún áhyggjur af ljósmæðrum sem séu settar inn í slíkar aðstæður of seint.

Innlent
Fréttamynd

Nálgist neyðar­á­stand

Formaður Félags sjúkraþjálfara segir alvarlega stöðu vera uppi á Reykjalundi og stutt í að lýsa þurfi yfir neyðarástandi. Félagið greindi frá því á dögunum að fjöldi sjúkraþjálfara hefði hætt störfum og fjöldi starfandi verði líklega kominn úr 24 í þrettán eftir áramót.

Innlent
Fréttamynd

Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá

Framkvæmdastjóri samtaka frumlyfjafyrirtækja á Íslandi segir verðkröfur stjórnvalda fæla erlend lyfjafyrirtæki frá því að markaðssetja lyf hér á landi. Ísland teljist örmarkaður á þessu sviði og öll Norðurlöndin myndi saman um fimm prósent af lyfjamarkaði Evrópu.

Innlent
Fréttamynd

Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það

Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa heillast af sjálfkeyrandi bílum fyrir um ári og telur mikið á því að græða að uppfæra lög svo að svoleiðis tækni sé möguleg hérlendis. Þá sé öryggið í þessum bílum sjö- eða áttfalt meira en í hefðbundnum akstri og maður upplifi það mjög fljótt að geta slakað á og nýtt tímann í umferðinni í stað þess að þurfa að einbeita sér að akstrinum.

Innlent
Fréttamynd

Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segist vona að ísraelskir kjósendur hafni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og öðrum sem eru með honum í ríkisstjórn. Þörf væri á nýrri ríkisstjórn sem hefði trú á tveggja ríkja lausninni svokölluðu.

Erlent
Fréttamynd

Gapti þegar hún sá heimilis­bók­haldið hjá Röggu nagla

„Ég varð bara mjög afbrýðisöm að heyra af Ragnhildi Þórðardóttur, betur þekkt sem Ragga nagli, sem einhvern veginn er búin að borga niður sextán milljónir króna af íbúðarláninu sínu sem hún tók fyrir tíu árum síðan,“ segir Helga Arnardóttir fjölmiðlakona en Ragnhildur er búsett í Danmörku.

Neytendur
Fréttamynd

Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum

Nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir samtökin alls ekki vilja þrengja að gegn einkabílnum heldur sé tilgangur samtakanna að gera það auðveldara að velja að vera bíllaus. Sumir gætu sleppt því að kaupa fleiri bíla á heimilið og skoðað það frekar að kaupa gott hjól í staðinn.

Innlent
Fréttamynd

„Sorg­legt að þetta sé staðan“

Dómsmálaráðherra segir hótanir í garð ráðamanna vera ömurlegt frávik frá því sem að öðru leyti einkenni íslenskt samfélag. Hún sé sjálf meðal þeirra ráðamanna sem hafi borist hótanir. 

Innlent
Fréttamynd

„Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“

Forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar segir nær enga erlenda ferðamenn vilja leiga sér rafbíl og segist ekki skilja hvaðan umhverfisráðherra fái þær tölur sem hann nefnir um fjárstuðning til bílaleiga í nafni loftlagsmála. Hann segist sakna samráðs við bílaleigur, það strandi ekki á þeim að bregðast við en reksturinn þurfi að standa undir sér.

Innlent
Fréttamynd

Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“

Talsmaður Fagfélaganna segir að farið verði fram á verulegar launahækkanir félagsmanna í kjaraviðræðum sem framundan eru í vetur, félagsmenn séu í bullandi launarýrnun samkvæmt könnun. Plan A sé þó að Samtök atvinnulífsins komi með útspil svo ekki þurfi að fara í hart og hið opinbera hækki ekki gjöld og álögur.

Innlent
Fréttamynd

Á­huga­málunum for­gangs­raðað framar náminu

Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu.

Innlent
Fréttamynd

Gæti þaggað niður í röddum lands­byggðarinnar

Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt.

Innlent
Fréttamynd

„Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“

Stjórnarformaður Tækniskólans telur að Hafnarfjarðarbær þurfi að standa undir tjóni sem verður af því að skólinn fékk ekki lóð í Hafnarfirði. Fjölmörg sveitarfélög hafa boðað fram aðstoð, þar á meðal Reykjavíkurborg.

Innlent
Fréttamynd

Snúist um dóm­greind frekar en gervi­greind

Snæbjörn Ragnarsson, tónlistarmaður og sköpunarstjóri á auglýsingastofunni Pipar TBWA, segir gervigreind vera gagnlegt tól í hönnunarvinnu en hún eigi ekki að koma að lokaafurð hönnunarinnar. Umræðan sé strembin en enn eigi almenningur eftir að átta sig á því hvað gervigreind raunverulega sé.

Innlent
Fréttamynd

„Ekkert sem gat bjargað þessu“

Byggingaverkfræðingur segir ekkert hafa getað komið í veg fyrir hrun tvíburaturnanna þann 11. september 2001 eftir að farþegaþotum var flogið inn í þá. Hrunið eigi sér skýringar í byggingaverkfræði en ekki samsæriskenningum.

Erlent
Fréttamynd

„Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“

Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, segir ekki nóg gert til að verja embættismenn fyrir hótunum og ofbeldi. Hann telur að Mohamad Th. Jóhannesson, áður Kourani, geti komist aftur til landsins þrátt fyrir endurkomubann en efast um að hann hafi áhuga á því. 

Innlent
Fréttamynd

Túlkunar­at­riði hvað eigi að gera við um­sóknina

Stjórnmálafræðingur og prófessor í fjölmiðlafræði segir óljóst hver eftirmál þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi að vera. Þau eigi þó eftir að hafa áhrif á þingveturinn framundan.

Innlent
Fréttamynd

„Lán á bara að vera lán“

Lilja Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans segir að þó svo að verðtryggð lán séu leið margra til að komast inn á húsnæðismarkað sé það sýn hennar og bankans að verðtryggð lán séu ekki nauðsynleg til lengri tíma. Hún sjái fyrir sér framtíð þar sem vægi þeirra verður minna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Ó­harðnaðir ung­lingar sem kunna ekkert á lífið“

Fólki er misvel við máva en íbúar höfuðborgarsvæðisins segja margir farir sínar ekki sléttar af fuglunum og atgangi þeirra síðastliðnar vikur. Ekki sé við þá að sakast enda um svanga og óharðnaða unglinga að ræða, að sögn fuglafræðings. 

Innlent
Fréttamynd

„Ríkið á stóra sök á þessu“

Fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2 segir það að hluta til sök ríkisins að kvöldfréttir Sýnar, áður Stöðvar 2, hafi verið lagðar niður. Staðan sé dapurleg.

Innlent
Fréttamynd

Á­standið minni á 2007

Hagfræðingurinn Már Wolfgang Mixa segir raunstýrivexti ekki hafa verið hærri síðan rétt fyrir bankahrun. Verktakar gætu neyðst til að gefa verulega afslætti til þess að losa sig við nýjar íbúðir, sem hrannist upp. Már telur „galið“ að eltast við 2,5 prósenta verðbólguviðmið Seðlabankans. Ríkið ætti að taka virkari þátt í að viðhalda efnahagslegum stöðugleika.

Neytendur
Fréttamynd

Stein­grímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildar­viðræðum

Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið þann 29. ágúst næstkomandi. Ástæðan sé meðal annars reynsla hans af viðræðunum árið 2009 en að þá hafi hvorki gengið né rekið að ræða undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu. 

Innlent
Fréttamynd

Sé verið að senda röng skila­boð til „kald­rifjaðra morðingja“

Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi ríkissaksóknari segir sérstakt að erlendir fangar séu ekki látnir afplána ekki nema einn þriðja af refsingu sinni í sparnaðarskyni en með því sé verið að mismuna íslenskum föngum. Reynslulausn og brottvísun erlendra fanga sendi röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja.“

Innlent
Fréttamynd

„Evrópu­sam­bandið er ekki konfektkassi“

„Evrópusambandið er ekki konfektkassi þar sem við getum farið og valið okkur bestu molana og sagt nei við hinum,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Guðrún segir vegferð ríkisstjórnarflokkanna dapurlega og að ESB-umræðan sé fyrst og fremst ætluð til að breiða yfir stöðu efnahagsmála.

Innlent
Fréttamynd

Al­var­legt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn

Margrét Valdimarsdóttir, dósent í félags- og afbrotafræði, segir að þó svo að leikfangabyssa sé notuð til að ógna sé það alvarlegt því fólk geri ekki endilega greinarmun á henni og raunverulegri byssu. Margrét segir mikilvægt að lögregla hafi brugðist við slíku atviki á Akureyri um helgina. Hún segir áríðandi að stjórnmálamenn bregðist ekki við slíkum atvikum með að ala á ótta eða andúð í garð ákveðinna hópa í samfélaginu. 

Innlent