Danilo hélt sigurgöngu Juventus á lífi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Danilo reyndist hetja Juventus í kvöld.
Danilo reyndist hetja Juventus í kvöld. Emilio Andreoli/Getty Images

Juventus hefur nú unnið átta leiki í röð í ítölsku A-deildinni eftir nauman 1-0 sigur gegn Udinese þar sem Danilo reyndist hetja heimamanna.

Eftir nokkuð erfiða byrjun á tímabilinu lyfti Juventus sér upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum, upp fyrir Ítalíumeistara AC Milan sem eiga þó leik til góða. 

Illa gekk hjá báðum liðum að brjóta ísinn og það var ekki fyrr en að um fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma að Danilo tryggði Juventus sigurinn með marki eftir stoðsendingu frá Federico Chiesa.

Juventus sem fyrr segir í öðru sæti deildarinnar með 37 stig eftir 17 leiki, fjórum stigum á eftir toppliði Napoli. Udinese situr hins vegar í áttunda sæti með 25 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira