Íslenski boltinn

Kristinn kveður Breiða­blik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“

Aron Guðmundsson skrifar
Kristinn Jónsson í Evrópuleik með Breiðabliki 
Kristinn Jónsson í Evrópuleik með Breiðabliki  vísir/Diego

Kristinn Jónsson kveður Breiðablik eftir yfirstandandi tímabil en ákvörðunin er ekki hans eigin. Þessi mikli reynslubolti hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort skórnir fari á hilluna en er þakklátur fyrir tíma sinn hjá félaginu. 

Kristinn tjáir sig um vendingarnar í færslu á Facebook en tæp tuttugu ár hafa liðið síðan hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið.

„Nú er því miður komið að kveðjustund. Ég hafði alltaf einhvern veginn ímyndað mér að þessi ákvörðun yrði mín, en hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér,“ skrifar Kristinn í færslu sinni. 

„Mér finnst ég enn hafa ýmislegt að gefa og hefði viljað halda áfram að leggja mitt af mörkum, bæði á vellinum og með því að miðla reynslunni til yngri strákanna sem eru að taka við. Þótt ég hefði kosið annað framhald er ég stoltur og þakklátur fyrir allt sem ég hef fengið að upplifa með félaginu.“

Kristinn var hluti af afar efnilegum árgöngum sem komu upp í gegnum starf Breiðabliks á sínum tíma. Leikmenn eins og Jóhann Berg Guðmundsson, Kristinn Steindórsson og Guðmundur Kristjánsson.

„Það hefur verið sérstakt að fá að vera hluti af svo mörgum tímamótum í sögu Breiðabliks: fyrsta bikarmeistaratitlinum, fyrsta Evrópuleiknum, fyrsta Evrópusigrinum og fyrsta Íslandsmeistaratitlinum. Ég var með þegar Breiðablik vann sitt fyrsta Evrópueinvígi og komst í fyrsta sinn áfram úr annarri umferð undankeppni Evrópudeildarinnar. Að skora í fyrsta sigri Breiðabliks í deildakeppni Sambandsdeildarinnar er líka minning sem ég mun alltaf halda upp á.“

Þá er Kristinn jafnframt stoltur af því að vera fyrsti og enn sem komið er eini leikmaður Breiðabliks sem hefur orðið stoðsendingahæstur í efstu deild, og sá eini sem lék í báðum úrslitaleikjunum sem færðu félaginu bikarmeistaratitil. 

„Núna er bara að njóta síðustu daganna með liðinu. Hvort skórnir fari á hilluna eða ekki á eftir að koma í ljós, en ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni.“

Færslu Kristins í heild sinni má sjá hér:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×