Maðurinn á bak við Rick and Morty ákærður fyrir heimilisofbeldi Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 13. janúar 2023 22:35 Hinn 42 ára gamli Justin Roiland talar einnig fyrir samnefndar aðalpersónur þáttanna: Rick og Morty. Getty/TheoWargo Justin Roiland, höfundur sjónvarpsþáttanna Rick and Morty, hefur verið ákærður fyrir heimilisofbeldi. Dómstóll í Kaliforníu í Bandaríkjunum tók málið fyrir í gær.
Ónafngreind kona, sem sögð er hafa átt í sambandi við Roiland, kærði hann upphaflega árið 2020. Samkvæmt umfjöllun NBC er hann sakaður um að hafa beitt konuna ofbeldi í upphafi þess árs. Svo fór að Roiland var handtekinn í ágúst árið 2020 en síðar sleppt gegn tryggingu. Konan fékk hins vegar nálgunarbann á hendur honum sem enn er í gildi. Roiland hefur allar götur síðan neitað ásökununum. Málið hefur velkst innan dómskerfisins í tvö ár og nokkur réttarhöld hafa farið fram. Meðal málsgagna eru myndbandsupptökur frá lögreglumönnum, skýrslur lækna, lögreglumanna og vitna. Lögregla hefur nú hins vegar formlega ákært Roiland og gert er ráð fyrir því að næsti liður málsmeðferðarinnar fari fram í apríl. Eins og fyrr segir er Roiland höfundur sjónvarpsþáttanna Rick and Morty, sem notið hafa gríðarmikilla vinsælda. Hann talar einnig fyrir samnefndar aðalpersónur Rick Sanchez og Morty Smith. Framleiðslufyrirtækið Adult Swim, dótturfyrirtæki Warner Bros, hefur ekki viljað tjáð sig um málið.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Árni Grétar Futuregrapher látinn Innlent Húsráðandi bað lögreglu um að vísa fimmtíu úr samkvæmi Innlent Eina sýklalyf sinnar tegundar tvöfaldast í verði Innlent „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Innlent Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Innlent Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Innlent „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Erlent Hópur manna réðst á Íslending í Liverpool Innlent Prestur á Nesinu segir nei takk við greiðslum Innlent Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Erlent Fleiri fréttir Dómsuppkvaðning í þöggunarmáli viku fyrir innsetningu „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Tímabært að Grænland taki skref í átt að sjálfstæði Maður lést í sprengingu um borð í skipi Smyril Line Maduro leggur fé til höfuðs keppinauti sínum Lögreglu tókst ekki að handtaka forsetann afsetta í Suður-Kóreu Skaut sig áður en bíllinn sprakk Talinn hafa staðið einn að verki Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Varnarmálaráðherrann sem Netanjahú rak hættir á þingi Rannsaka hvort Tesla-sprengingin hafi verið hryðjuverk Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi Flutningur á rússnesku gasi um Úkraínu til Evrópu stöðvast að fullu Ellefu særðir eftir skotárás við skemmtistað í New York Tala látinna hækkar í fimmtán Einn lést er Tesla sprakk fyrir utan Trump-hótel Tvö börn meðal látinna eftir skotárás á veitingastað Tvær heimagerðar sprengjur fundust á svæðinu Árásarmaðurinn skotinn til bana Tíu látnir eftir að bíl var ekið á fólk í New Orleans Ungur maður lést í flugeldaslysi í Danmörku Íslenski fjárhundurinn viðurkenndur af Kennel samtökunum Fyrstu börn Beta-kynslóðarinnar fæðast á morgun Handtökuheimild á hendur forsetanum samþykkt Heiðrar lækna sína í miðri krabbameinsmeðferð Hóta Hútum sömu „aumu örlögum“ og Hamas og Hezbollah Trump kemur Johnson til bjargar Vöruðu við fuglum rétt fyrir slysið Sjá meira