Lífið

Þetta eru lögin sem Idol kepp­endur munu flytja í kvöld

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Þetta eru þeir sjö keppendur sem munu stíga á stokk í Idolhöllinni í kvöld.
Þetta eru þeir sjö keppendur sem munu stíga á stokk í Idolhöllinni í kvöld. stöð 2

Föstudagar eru Idol dagar og í kvöld fara fram sjö manna úrslit. Rétt eins og síðasta föstudag verður keppnin í beinni útsendingu frá Idolhöllinni í Gufunesi.

Spennan magnast og er ljóst að keppnin verður harðari með hverri vikunni sem líður. Síðasta föstudag var það Birgir Örn Magnússon, eða Biggi, sem var sendur heim.

Rétt eins og síðasta föstudagskvöld eru örlög keppenda í höndum áhorfenda. Símakosning segir til um það hvaða keppendur halda áfram og hvaða keppandi verður sendur heim.

Þátturinn í kvöld verður seinna á dagskrá en venjulega vegna leik karlalandsliðsins í handbolta. Þátturinn byrjar klukkan 21:00 á Stöð 2. Áhorfendur munu því ekki þurfa að velja milli þess að horfa á Idol eða landsleikinn.

Þema kvöldsins er ástin sjálf og munu þeir sjö keppendur sem eftir standa því spreyta sig á ástarlögum. Hér fyrir neðan má sjá hvaða lög keppendur munu flytja á stóra sviðinu í Idolhöllinni kvöld.


Þórhildur Helga - 900-9003

Hallelujah - Leonard Cohen
Þórhildur Helga - 900-9003.

Bía - 900-9008

In Case You Don't Live Forever – Ben Platt
Bía - 900-9008.

Símon Grétar - 900-9007

Wicked Game – Chris Isaak
Símon Grétar - 900-9007.

Ninja - 900-9005

All I Could Do Was Cry – Beyonce
Ninja Sigmunds - 900-9005.

Guðjón Smári - 900-9002

I Want to Know What Love Is – Foreigner
Guðjón Smári - 900-9002.

Saga Matthildur - 900-9001

Tennessee Whiskey - Chris Stapleton
Saga Matthildur - 900-9001.

Kjalar - 900-9006

Something – Bítlarnir
Kjalar - 900-9006.

Tengdar fréttir

Idol seinkað vegna lands­leiksins á föstu­dag

Idol þátturinn á föstudag verður á dagskrá á nýjum tíma, klukkan 21:00 en ástæðan er leikur karlalandsliðsins í handbolta. Áhorfendur þurfa því ekki að velja milli þess að horfa á Idol eða landsleikinn.

Myndaveisla frá Idol á föstudag

Sjötti þáttur af Idol var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 á föstudag. Átta keppendur stigu þar á glæsilegt svið og fluttu lög fyrir dómnefndina og áhorfendur í sal og heima í stofu.

„Ég er ekkert að fara að stoppa hérna“

„Í enda dagsins er ég bara ótrúlega stoltur af mér og minni frammistöðu. Mér finnst eins og ég hafi gert mitt besta og ef það er ekki nóg þá er það bara þannig,“ segir Idol keppandinn Birgir Örn Magnússon sem sendur var heim síðasta föstudag.

Þessi var sendur heim úr Idolinu

Fyrsti þátturinn í beinni útsendingu Idolsins fór fram í Idolhöllinni fyrr í kvöld. Þátturinn var æsispennandi en átta keppendur mættu til leiks. Aðeins sjö komust áfram og var því einn keppandi sendur heim eftir kvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.