Menning

Listir, stjórn­mál og at­vinnu­líf mætast í tökum BBC í Tjarnar­bíói

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hópur úr hinum ýmsu geirum situr fyrir svörum.
Hópur úr hinum ýmsu geirum situr fyrir svörum. Vísir/Vilhelm, Getty/Carlos R. Alvarez

Fjölbreytt blanda merkra Íslendinga munu sitja fyrir svörum við upptökur á útvarpsþætti breska ríkisútvarpsins „World Questions“ í Tjarnarbíói þann 7. febrúar næstkomandi.

Um er að ræða einskonar málfund þar sem stjórnmálafólk er spurt að hinum ýmsu spurningum sem varpa ljósi á land og þjóð.

Spurningarnar geta komið alls staðar að og er það Jonny Dymond, sérfræðingur BBC í bresku konungsfjölskyldunni, sem fer með þáttarstjórn. Breska ríkisútvarpið hefur framkvæmt eins viðburði um allan heim.

Þeir Íslendingar sem hafa verið boðaðir til þess að svara spurningum áhugasamra eru Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, ráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins.

Búist er við því að tekið verði á stærri málaflokkum eins og ferðamannaiðnaðinum, loftslagsbreytingum og stríðinu í Úkraínu ásamt öðru innlendu. Ætlunin sé að kynna landið og stöðu þess fyrir þeim sem það ekki þekkja.

Hægt er að skrá sig á viðburðinn í gegnum eyðublað frá British Council hér.

Samkvæmt vef BBC verður upptakan af málfundinum aðgengileg hér þann 11. febrúar næstkomandi stuttu eftir að þátturinn kemur út. Þátturinn fer í loftið klukkan 19:06 á íslenskum tíma.

Aðra World Questions útvarpsþætti má hlusta á með því að smella hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.