Orri frá FCK að láni og lýst sem alræmdum markaskorara Sindri Sverrisson skrifar 31. janúar 2023 16:20 Orri Steinn Óskarsson klæðist búningi SönderjyskE fram á sumar. soenderjyskefodbold.dk Framherjinn ungi Orri Óskarsson er farinn að láni frá FC Kaupmannahöfn til SönderjyskE og mun því spila í dönsku 1. deildinni fram á sumar.
Orri, sem er 18 ára gamall, kom til FCK sumarið 2020 frá Gróttu og hefur til að mynda skorað 29 mörk í 25 leikjum með U19-liði félagsins. Á yfirstandandi leiktíð hefur hann svo spilað leiki með aðalliði FCK í dönsku úrvalsdeildinni, bikarkeppninni og sjálfri Meistaradeild Evrópu. Esben Hansen, íþróttastjóri SönderjyskE, fagnar komu Orra og segir að komið verði fram við hann eins og hann sé gegnheill leikmaður félagsins, þó að aðeins sé um lánssamning að ræða. „Við erum afskaplega glöð með að Orri skuli spila með SönderjyskE það sem eftir er leiktíðar. Það er enginn vafi um að Orri er alræmdur markaskorari sem hefur sýnt að hann kann að skora mörk,“ sagði Hansen á heimasíðu SönderjyskE. Orri mætir til æfinga hjá sínu nýja liði á morgun og mun svo hjálpa til í baráttunni um að komast upp í úrvalsdeildina. SönderjyskE er í 6. sæti með 27 stig eftir 17 leiki, en aðeins sex stigum frá 2. sæti. Tvö efstu liðin, eftir 32 umferðir, komast upp í úrvalsdeildina.
Danski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Fótbolti Fleiri fréttir „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Sjá meira