Eigandi Liverpool segir félagið ekki til sölu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. febrúar 2023 19:16 Liverpool er ekki til sölu þrátt fyrir fréttir og orðróma um annað. MB Media/Getty Images John W. Henry, eigandi enska knattspyrnufélagsins Liverpool, segir það ekki til sölu. Henry segir þó að hann sé tilbúinn að fá inn nýja fjárfesta til að aðstoða við rekstur félagsins.
Henry er eigandi FSG, Fenway Sports Group, sem keypti Liverpool árið 2010 á 300 milljónir punda (52,4 milljarða íslenskra króna]. Í nóvember á síðasta ári sagði Henry að FSG væri tilbúið að fá inn nýja fjárfesta til að aðstoða við reksturinn en í kjölfarið fóru orðrómar á kreik að FSG vildi selja félagið. Henry hefur endanlega tekið fyrir það að Liverpool sé til sölu en hann ræddi við Boston Sports Journal í dag. Sagði hann að hvorki hann né FSG yrðu í Englandi að eilífu en að sama skapi væri Liverpool ekki til sölu. Hann sagði að FSG væri í viðræðum við nýja fjárfesta og hann væri viss að það kæmi eitthvað úr því, það yrði hins vegar aldrei sala á félaginu í heild. Þetta yrði ekki í fyrsta sinn sem FSG myndi selja hlut í félaginu en árið 2021 seldi það fjárfestingafyrirtækinu RedBird Capital hlut fyrir 533 milljónir punda [93 milljarða íslenskra króna]. Liverpool owner John Henry says he is not selling the club pic.twitter.com/rDUi36yubE— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) February 20, 2023 Síðan FSG keypti Liverpool hefur félagið unnið ensku úrvalsdeildina, Meistaradeild Evrópu, FA bikarinn, enska deildarbikarinn tvívegis, HM félagsliða, Ofurbikar Evrópu og samfélagsskjöldinn. „Höfum við selt eitthvað undanfarin 20 ár,“ spurði Henry að endingu um mögulega sölu á Liverpool en FSG á einnig hafnaboltaliðið Boston Red Sox og íshokkí liðið Pittsburgh Penguins.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira