Allt galopið eftir jafntefli City í Þýskalandi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Ilkay Gundogan í baráttu við Benjamin Heinrichs í leiknum í kvöld.
Ilkay Gundogan í baráttu við Benjamin Heinrichs í leiknum í kvöld. Vísir/Getty

Manchester City og RB Leipzig gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en leikurinn fór fram í Þýskalandi í kvöld.

Meistaradeildin er sá titill sem Pep Guardiola á eftir að vinna sem þjálfari Manchester City og titill sem flestir stuðningsmenn liðsins bíða eftir að geta fagnað.

Liðið hélt til Þýskalands í dag þar sem liðið heimsótti RB Leipzig. Leikurinn fór nokkuð vel af stað fyrir City því Riyad Mahrez kom liðinu yfir á 27.mínútu.

Lið City var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og hafði töluverða yfirburði úti á velli.  Staðan var 1-0 í hálfleik en í síðari hálfleik náði lið RB Leipzig að koma sér betur inn í leikinn.

Á 70.mínútu jafnaði Josko Gvardiol fyrir heimamenn en króatíski varnarmaðurinn sló í gegn á heimsmeistaramótinu í Katar og vakti þá mikla athygli. Á lokamínútunum vildi City fá vítaspyrnu þegar markaskorarinn Gvardiol virtist fá boltann í höndina en ekkert var dæmt.

Lokatölur í kvöld 1-1 og einvígið því galopið fyrir seinni leik liðanna  sem fram fer í Manchester eftir þrjár vikur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira