Gísli Þorgeir mataði félaga sína í góðum sigri Magdeburg Smári Jökull Jónsson skrifar 22. febrúar 2023 21:28 Gísli Þorgeir og félagar eru í góðri stöðu í Meistaradeildinni Vísir/Getty Gísli Þorgeir Kristjánsson átti fínan leik fyrir Magdeburg sem lagði Zagreb að velli á útivelli í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld.
Fyrir leikinn í dag var Magdeburg í öðru sæti síns riðils en tvö efstu liðin fara beint í átta liða úrslit keppninnar og þurfa ekki að keppa í umspili. Zagreb var hins vegar í sjötta sæti riðilsins. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á forystunni. Magdeburg leiddi 16-14 í hálfleik en það var mesti munurinn á liðunum í hálfleiknum. Í síðari hálfleik stigu Þýskalandsmeistararnir hins vegar aðeins á bensíngjöfina. Þeir komust fljótlega fjórum mörkum yfir og þann mun náðu Króatarnir ekki að brúa. Forysta Magdeburg varð mest sex mörk líkt og munurinn var á liðunum í lokin, lokatölur 31-25 Magdeburg í vil sem þar með heldur öðru sæti riðilsins á eftir toppliði PSG. Gísli Þorgeir skoraði þrjú mörk úr sex skotum fyrir Magdeburg í kvöld auk þess að gefa hvorki fleiri né færri en tíu stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon var ekki með Magdeburg vegna meiðsla sem munu halda honum frá keppni út tímabilið.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Fótbolti Dukic harðorður gagnvart CrossFit: Fyrirtæki sem virðir ekki mannslíf Sport Eina félagið án útlendinga: „Þurfum vettvang fyrir unga leikmenn“ Körfubolti Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Fótbolti „Margir með konur en eru kannski einir í útlöndum“ Körfubolti Missti stjórn á sér og gaf stig: „Veit að þetta er ekki mjög sænsk hegðun“ Sport Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Fótbolti Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Enski boltinn Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Enski boltinn Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Tvö Íslendingalið áfram með fullt hús í Evrópudeildinni FH náði aðeins betri úrslitum á móti Gummersbach í þetta skiptið Uppgjör: Valur - Vardar 34-34 | Víti þegar leiktíminn var liðinn felldi Val Ásbjörn leikgreinir Gummersbach Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Blær var uppeldisfélaginu erfiður í kvöld Framarar flugu í átta liða úrslitin á gamla heimavellinum Með tvo syni í útlöndum og vildi mann með nýja orku Ágúst tekur við af Óskari hjá Val KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Sjá meira