Erlent

Þúsundir meintra glæpa­manna flutt í risa­fangelsi

Kjartan Kjartansson skrifar
Hluti fangahópsins sem var fluttur í nýja risafangelsið. Fleiri en 64.000 manns hafa verið handteknir í stríði forseta landsins gegn glæpum.
Hluti fangahópsins sem var fluttur í nýja risafangelsið. Fleiri en 64.000 manns hafa verið handteknir í stríði forseta landsins gegn glæpum. Vísir/Getty

Yfirvöld í Mið-Ameríkuríkinu El Salvador byrjuðu að flytja þúsundir grunaðra glæpamanna í risavaxið fangelsi sem á að hýsa allt að fjörutíu þúsund fanga. Aðgerðin er liður í harðlínustefnu Nayibs Bukele forseta gegn glæpagengjum.

Öryggissveitir hafa smalað saman tugum þúsunda grunaðra félaga í glæpagengjum eftir að Bukele lýsti yfir neyðarástandi vegna morð- og ofbeldisöldu í landinu í mars í fyrra. Neyðarástandsyfirlýsingin hefur verið endurnýjuð ítrekað síðan, síðast í síðustu viku.

Mannréttindasamtök hafa gangrýnt neyðarástandið og aðfarir lögreglu. Það fellir viss stjórnarskrárbundin réttindi úr gildi sem hefur gert lögreglu kleift að handataka menn án handtökuskipunar. Yfirvöld geta fylgst með fjarskiptum grunaðra manna og fangar eiga ekki rétt á að ræða við lögmann, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Gagnrýnendur segja að saklaust fólk hafi verið handtekið og að tugir manna hafi látist í haldi lögreglu. Aðgerðirnar eru þrátt fyrir það almennt vinsælar á meðal almennings.

Bukele birti myndir af fyrstu föngunum sem voru sendir í nýtt risafangelsi í Tecoluca. Á þeim sjást þeir hlekkjaðir og aðeins klæddir í síðar hvítar stuttbuxur. Þeir eru allir krúnurakaðir og húðflúraðir í bak og fyrir.

Forsetinn segir að tvö þúsund fangar hafi verið fluttir í fangelsið fyrir dögun. Fangelsið sé það stærsta í Ameríkunum.

„Þetta verður nýja húsið þeirra, þar sem þeir búa um áratugaskeið, blandaðir saman og geta ekki valdið almenningi frekara tjóni,“ tísti Bukele í gærmorgun.

Fangelsið er kallað Miðstöð til að loka á hryðjuverk. Það stendur saman af átta byggingum. Hver þeirra er með þrjátíu og tvo klefa sem eru hundrað fermetrar að flatarmáli. Hver klefi á að hýsa fleiri en hundrað fanga. Aðeins eru tveir vaskar og tvö klósett í hverjum klefa, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Sendir inn 10.000 her­menn til að svæla út glæpa­gengi

Forseti El Salvadors sendi um 10.000 her- og lögreglumenn til þess að umkringja úthverfi höfuðborgarinnar San Salvador og handtaka félaga í glæpagengjum. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt herför forsetans gegn gengjum landsins.

Fordæma meðferð á föngum í El Salvador

Mannréttindasamtök fordæma Nayib Bukele, forseta El Salvador, vegna mynda sem hann birti af hundruðum fanga sem höfðu verið strípaðir niður á nærbuxurnar og látnir sitja þétt upp við hver annan. Bukele sagði meðferðina hluta af refsingu fanganna fyrir morðöldu um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×