Forstjóri Ríkiskaupa ráðinn innkaupastjóri Bónuss Atli Ísleifsson skrifar 2. mars 2023 09:33 Björgvin Víkingsson tók við embætti forstjóra Ríkiskaupa árið 2020. Stjr Björgvin Víkingsson, forstjóri Ríkiskaupa, hefur verið ráðinn innkaupastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Bónus.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bónus. Þar segir að hann taki við stöðunni 1. maí 2023. „Björgvin hefur starfað sem forstjóri Ríkiskaupa frá árinu 2020 og leitt umbreytingu á stefnu og vinnulagi í innkaupum og stjórnun stofnunarinnar. Björgvin er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólanum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Björgvin hefur víðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík. Haft er eftir Guðmundi Marteinssyni, framkvæmdastjóra Bónuss, að starfsemi Bónus hafi gengið vel og umsvifin aukist verulega, bæði vegna fjölgunar verslana og rýmri opnunartíma. „Þetta þýðir að það eru fleiri verk að vinna og það er virkilega ánægjulegt að fá nýjan og öflugan liðsmann, Björgvin Víkingsson, í Bónus-teymið. Bónus hefur alla tíð lagt áherslu á hagkvæmni í innkaupum ásamt því að halda rekstrakostnaði í lágmarki, Björgvin verður því góður liðstyrkur og mun gera gott teymi enn betra,“ segir Guðmundur.
Stjórnsýsla Vistaskipti Mest lesið „Svarið er einfaldlega: Svona höfum við alltaf gert þetta“ Atvinnulíf Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Viðskipti innlent MrBeast gerir tilboð í TikTok Viðskipti erlent Kaffi Kjós til sölu Viðskipti innlent Íslandsbanki og VÍS skrifa undir samstarfssamning Neytendur Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Viðskipti innlent Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg Viðskipti innlent „Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ Atvinnulíf Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Viðskipti innlent „Ætla ekki að ljúga því að ég sé einhver ofurhress morguntýpa“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Kaffi Kjós til sölu Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg Karen inn fyrir Þórarin Björn Leifsson horfir til Vestmannaeyja Yfirtakan hækkaði gengi krónunnar töluvert Afkoma Arion lengst yfir spám greinenda Þögul sem gröfin um auglýsinguna umdeildu Eftirlitið gefur lítið fyrir yfirlýsingu Styrkáss Erla Ósk ráðin forstöðumaður EMBA náms við HR Fjögur skip hefja leit að loðnu Segir seinkun Hvammsvirkjunar geta þýtt tugmilljarða tekjutap Svigrúm fyrir keppinauta „sem ástunda ekki jafnósvífna verðlagningu“ Hagnaðurinn dregst saman Hrönn stýrir Kríu Skoða að leita réttar síns vegna „óeðlilegra viðskiptahátta“ ríkisins Jónína tekur við af Elísabetu hjá BBA//Fjeldco Ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Ofar Indó sigurvegari Ánægjuvogarinnar Bein útsending: Mannamót markaðsstofa landshlutanna Undirrituðu samstarfssamning við Southwest Airlines Brynja nýr fjármálastjóri LIVE Íslenska ánægjuvogin kynnt á Grand Hóteli Elísabet Hanna til Bara tala Heildarafli síðasta árs 28 prósent minni en 2023 Hópuppsögn hjá Sidekick Health Endurgreiða raforkuframleiðendum þrjá milljarða Bætist í hóp eigenda Frumtak Ventures Sjá meira