Leiguverð orðið hærra en lágmarkslaunin Jakob Bjarnar skrifar 2. mars 2023 10:14 Staðan er nú sú að leiga á þriggja herbergja íbúð er orðin hærri en heildarlaun þau sem lágmarkstaxtar segja til um. Ragnar Þór segir ríkisstjórnina í engu bregðast við hroðalegri stöðu á húsnæðismarkaði. vísir/vilhelm/skjáskot Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stöðuna á húsnæðismarkaði orðna algerlega sturlaða. Hann bendir á nýlega auglýsingu, 3 herbergja íbúð sem boðin er til leigu á 375 þúsund krónur á mánuði. „
Þetta er töluvert yfir lægstu launatöxtum, sem voru fyrir skatt rúmar 367.000 kr., fyrir hækkanir síðustu kjarasamninga.“ Ragnar greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni en hann hefur fylgst grannt með stöðu mála á leigumarkaði og hefur safnað saman hrollvekjandi reynslusögum leigjenda. Ragnar segir Bjarg Íbúðafélag með sambærilega íbúð til leigu við Tangabryggju á 166.475 kr. og frá því dragist húsaleigubætur.„Leigufélagið Alma hefur borið fyrir sig markaðinn þegar tugþúsunda hækkunum, umfram vísitölu, er hellt yfir viðskiptavini þeirra með reglulegu millibili og er viðbúið að þetta nýja viðmið markaðarins á Tangabryggju verði notað við næstu 12 mánaða endurskoðun þeirra þegar viðskiptavinir þeirra fá „boð“ um endurnýjun á leigusamningi.“ Ragnar segir til samanburðar að þau hjá Bjargi hafi verið að skila af sér dýrustu blokk sem Bjarg hefur byggt en sú blokk stendur við Maríugötu í Garðabæ. Eina af ástæðunum fyrir því að hún var dýrari í framkvæmd var sú að lofthæð þurfti að vera meiri, en svo spila aðrir þættir þar inn líka eins og hærri fjármagnskostnaður og hærri byggingarkostnaður. „Það þýðir að leiguverðið á 3 herbergja íbúð við Maríugötu er það hæsta sem við höfum þurft að setja á slíka íbúð í sögu Bjargs eða 190.000 kr. á mánuði. Við erum með þinglýstan leigusamning frá blokkinni við hliðina en þar fór íbúð í leigu á 320.000 kr. fyrir hálfu ári síðan.“ Sturluð staða Að sögn Ragnars Þórs hefur nú árum saman stefnt í eina alvarlegustu húsnæðiskreppu síðari ára. Meðan ríkisstjórnin hefur ekki brugðist við svo neinu nemi. Hann bendir á að árum saman hafi verið bent á að vert sé að koma á leigubremsu, að helsti drifkraftur verðbólgu er framboðsskortur á húsnæði og árum saman hafi verið reynt að fá lífeyrissjóði til að fjárfesta í uppbyggingu á húsnæðismarkaði. Mikil og hörð umræða skapast á Facebook-síðu Ragnar Þórs og spara menn þar ekki stóru orðin. „Þetta er svo helsjúkt,“ segir einn. „Árum saman höfum við reynt að koma stjórnvöldum í skilning um þessa stöðu en einungis fengið starfshóp eftir starfshóp og nefnd eftir nefnd en engar aðgerðir eða efndir. Staðan í dag er að húsnæðismarkaðurinn er botn frosinn. Framkvæmdir dragast saman og stefnir í algjört óefni. Hátt vaxtastig og aðgerðir Seðlabankans hafa þannig lokað á eftirspurnarhliðina, og framboðshliðin er að lokast líka.“ Ríkisstjórnin algerlega firrt Ragnar Þór segir ríkisstjórnina mæna á stöðuna á vinnumarkaði og vilji helst beisla hann með lögum. Og að kjarasamningar séu helsta ógnin við stöðugleika en þar hafi laun hækkað um 35.000 til 66.000 krónur á mánuði, séu nú helsta ógnin við stöðugleika. „Þetta er það eina sem þau hafa til málanna að leggja á meðan þinfararkaupið, sem er Kr. 1.345.582.- og hefur hækkað um 582.642 í krónum talið frá árinu 2016, mun að öllum líkindum hækka um að lágmarki 115.000 kr. við næstu endurskoðun í júlí ef við áætlum hver 12 mánaða launavísitala verði þá. Fjármálaráðherra telur okkur aldrei hafa haft það betra á meðan bankarnir öskra eftir enn hærri vöxtum svo þeir geti gengið á eigið fé almennings sem myndast hefur í húsnæðum þeirra.“ Ragnar Þór segir stöðuna versna og versna. „Þetta er vitskert veröld sem við búum í.“
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Leigumarkaður Húsnæðismál Neytendur Mest lesið Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Mesta kvikusöfnun til þessa Innlent Ætla að fara fram á frávísun málsins Innlent „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Innlent „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Innlent Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Innlent „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Innlent Maðurinn er kominn í leitirnar Innlent Fleiri fréttir Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Færri strætóferðir um páskana Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Hellisheiðin opin að nýju og snjókoma í borginni Sjá meira