Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Gjaldgeng til verðlaunanna eru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem sýnd voru opinberlega á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2022.
Flestar tilnefningar hljóta sjónvarpsþættirnir Verbúðin með alls fimmtán tilnefningar, þar á meðal sem leikið sjónvarpsefni ársins. Þættirnir fjalla á dramatískan en um leið kómískan hátt um afleiðingar kvótakerfisins í sjávarútvegi fyrir lítið þorp á Vestfjörðum á árunum 1983 til 1991. Þættirnir vöktu mikla lukku landsmanna þegar þeir voru sýndir á Rúv á síðasta ári.
Sú kvikmynd sem hlýtur flestar tilnefningar er kvikmyndin Svar við bréfi Helgu sem hlýtur alls tólf tilnefningar. Kvikmyndirnar Berdreymi og Volaða land fylgja þó fast á eftir með ellefu tilnefningar hvor um sig. Allar eru þær tilnefningar í flokknum kvikmynd ársins.
Þá hljóta verk á vegum Stöðvar 2, Stöðvar 2 Sport og fréttastofu Stöðvar 2 alls tuttugu tilnefningar.
Hér að neðan má sjá allar tilnefningarnar.
Kvikmynd ársins
- Svar við bréfi Helgu
- Sumarljós og svo kemur nóttin
- Against the Ice
- Berdreymi
- Volaða land

Heimildamynd ársins
- Velkominn Árni
- Út úr myrkrinu
- Sundlaugasögur

Leikið sjónvarpsefni ársins
- Trom
- Svörtu sandar
- Randalín og Mundi: Dagar í desember
- Brúðkaupið mitt
- Verbúðin

Leikstjóri ársins
- Heimir Bjarnason - Þrot
- Ása Helga Hjörleifsdóttir - Svar við bréfi Helgu
- Guðmundur Arnar Guðmundsson - Berdreymi
- Hlynur Pálmason - Volaða land
- Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson & María Reyndal - Verbúðin

Leikari ársins í aðalhlutverki
- Þorvaldur Davíð Kristjánsson - Svar við bréfi Helgu
- Birgir Dagur Bjarkason - Berdreymi
- Viktor Benoný Benediktsson - Berdreymi
- Ingvar E. Sigurðsson - Volaða land
- Gísli Örn Garðarsson - Verbúðin

Leikkona ársins í aðalhlutverki
- Hera Hilmarsdóttir - Svar við bréfi Helgu
- Sara Dögg Ásgeirsdóttir - Sumarljós og svo kemur nóttin
- Aldís Amah Hamilton - Svörtu sandar
- Kría Burgees - Randalín og Mundi: Dagar í desember
- Nína Dögg Filippusdóttir - Verbúðin

Leikari ársins í aukahlutverki
- Björn Thors - Svar við bréfi Helgu
- Blær Hinriksson - Berdreymi
- Hilmar Guðjónsson - Volaða land
- Guðjón Davíð Karlsson - Verbúðin
- Ingvar E. Sigurðsson - Verbúðin

Leikkona ársins í aukahlutverki
- Aníta Briem - Svar við bréfi Helgu
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir - Svörtu sandar
- Katla Njálsdóttir - Vitjanir
- Kristín Þóra Haraldsdóttir - Verbúðin
- Unnur Ösp Stefánsdóttir - Verbúðin

Búningar ársins
- Berdreymi - Helga Rós Hannam
- Svar við bréfi Helgu - Eugen Tamberg
- Verbúðin - Margrét Einarsdóttir og Rebekka Jónsdóttir
- Against the ice - Margrét Einarsdóttir
- Volaða land - Nina Grønlund

Gervi ársins
- Svar við bréfi Helgu - Evalotte Oosterop
- Berdreymi - Kristín Júlla Kristjánsdóttir
- Volaða land - Katrine Tersgov
- Abbababb! - Hafdís Kristín Lárusdóttir
- Verbúðin - Kristín Júlla Kristjánsdóttir

Leikmynd ársins
- Sumarljós og svo kemur nóttin - Heimir Sverrisson
- Abbababb! - Systa Björnsdóttir
- Svörtu sandar - Gunnar Pálsson & Marta Luiza Macuga
- Against the ice - Atli Geir Grétarsson
- Verbúðin - Atli Geir Grétarsson & Ólafur Jónasson

Brellur ársins
- Magic Lab, Haymaker, Split - Berdreymi
- Rob Tasker - Abbababb!
- Sigurgeir Arinbjarnarson - Svörtu sandar
- Guðjón Jónsson (VFX Supervisor) Monopix / ShortCut / MPC / Union VFX/ Filmgate - Against the ice
- Davíð Jón Ögmundsson - Verbúðin

Handrit ársins
- Heimir Bjarnason - Þrot
- Bergsveinn Birgisson, Ottó G. Borg og Ása Helga Hjörleifsdóttir- Svar við Bréfi Helgu
- Guðmundur Arnar Guðmundsson - Berdreymi
- Hlynur Pálmason - Volaða land
- Vala Þórsdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir & Eva Sigurðardóttir - Vitjanir

Frétta- og viðtalsefni ársins
- Vigdís - Forseti á friðarstóli - Stöð 2
- Kompás - Stöð 2
- Krakkafréttir - KrakkaRÚV
- Kveikur - Fréttastofa RÚV
- Um land allt - Stöð 2

Skemmtiefni ársins
- Stóra sviðið
- Krakkakviss
- Krakkaskaupið
- Áramótaskaup 2022
- Hraðfréttir 10 ára

Íþróttaefni ársins
- Jón Arnór - Stöð 2 Sport & Stöð 2
- Úrslitakeppni í körfubolta/körfuboltakvöld - Stöð 2 Sport
- Förum á EM - Pera fyrir RÚV
- HM stofan/HM kvöld - RÚV Íþróttir
- Alex from Iceland - Skot Productions

Mannlífsefni ársins
- Æði 4
- Leitin að upprunanum
- Börnin okkar
- Náttúran mín
- Hvunndagshetjur

Menningarefni ársins
- Veislan
- Morð í norðri
- Skapalón
- Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
- Klassíkin okkar

Kvikmyndataka ársins
- Jasper Wolf - Svar við bréfi Helgu
- Sturla Brandth Grøvlen - Berdreymi
- Maria von Hausswolff - Volaða land
- Jóhann Máni Jóhannsson - Svörtu sandar
- Hrafn Garðarsson - Verbúðin

Tónlist ársins
- Páll Ragnar Pálsson og Eðvarð Egilsson - Skjálfti
- Gunnar Týnes - Sumarljós og svo kemur nóttin
- Alex Zheng Hungtai - Volaða land
- Ragnar Ólafsson - Vitjanir
- Herdís Stefánsdóttir & Kjartan Dagur Holm - Verbúðin

Klipping ársins
- Antti Reikko - Svar við bréfi Helgu
- Andri Steinn Guðjónsson & Anders Skov - Berdreymi
- Julius Krebs Damsbo - Volaða land
- Úlfur Teitur Traustason - Svörtu sandar
- Kristján Loðmfjörð - Verbúðin

Hljóð ársins
- Gunnar Árnason - Skjálfti
- Tuomas Klaavo - Svar við bréfi Helgu
- Yanna Soentjens, Matthias Hillegeer - Sumarljós og svo kemur nóttin
- Björn Viktorsson & Kristian Eidnes Andersen - Volaða land
- Kjartan Kjartansson - Against the ice

Barna- og unglingaefni ársins
- Abbababb!
- Krakkaskaupið
- Miðjan
- Ævntýri Tulipop
- Randalín og Mundi: Dagar í desember

Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins
- Sturla Skúlason - Sögur verðlaunahátíð
- Björgvin Harðarson - Blindur bakstur
- Þór Freysson - Mugison og Cauda Collective - Haglél í 10 ár
- Salóme Þorkelsdóttir - Söngvakeppnin 2022
- Þór Freysson - Sigurrós í Höllinni

Stuttmynd ársins
- Mitt Draumaland
- Hávængja (Chrysalis)
- Kílómetrar
- Hreiður
- HEX

Sjónvarpsmanneskja ársins
- Chanel Björk Sturludóttir
- Kristjana Arnarsdóttir
- Kristján Már Unnarsson
- Steinþór Hróar Steinþórsson
- Viktoría Hermannsdóttir
