Nær öll matvara hefur hækkað á síðustu 12 mánuðum
Innkaupakarfan á Spáni hækkaði um tæp 16 prósent í fyrra. Það þykir innfæddum meira en mikið, eiginlega alger óhæfa enda fór verðbólga í hærri hæðir í fyrra en hún hefur gert frá því að lýðræði var komið á í landinu í upphafi 9. áratugarins.
Reyndar ákvað ríkisstjórnin hér í landi að lækka virðisaukaskatt af grundvallarmatvöru úr 4% niður í núll um áramótin og úr 10% í 5% af nokkrum öðrum fæðutegundum, til að lækka verðbólguna, sem á síðasta ári mældist 8,3% en er nú tekin að hjaðna að nýju.
Rótina að hækkun matarkörfunnar má fyrst og fremst rekja til hækkunar þess sem við myndum kalla grunnþarfanna í matarkörfunni, mat sem flestar fjölskyldur kaupa inn í miklum mæli; mjólk, egg, olíur, gos, vatn og safa, ávexti, grænmeti, kjöt og síðast en ekki síst EGG. Eggin hækkuðu meira en flest annað eða um 30 til 40 prósent á síðasta ári. Og það er ekki sérspænskt fyrirbrigði. Nei, egg hækkuðu upp úr öllu valdi á síðasta ári, og eru enn að hækka.
Skæð fuglaflensa um alla Evrópu
Þessar miklu verðhækkanir eru fyrst og fremst raktar til stríðsins í Úkraínu, án þess að útskýra það flækjustig frekar. En í tilfelli eggjanna kemur annað og meira til. Það er nefnilega grasserandi fuglaflensa víðs vegar um heiminn og tilfellum fjölgaði mikið á síðari hluta ársins 2022. Samkvæmt nýrri skýrslu Matvælaöryggisráðs Evrópu þá greindist fuglaflensa í 37 Evrópulöndum í fyrra og flensan greindist á rúmlega 2.500 fuglabúum í ríkjum Evrópusambandsins. Alls þurfti að slátra 50 milljónum fugla á hænsnabúum í Evrópu. Sums staðar hefur niðurskurðurinn verið það hvass að eggjaframleiðendur geta ekki lengur sinnt eftirspurn.
Staðan er ekki skárri í Bandaríkjunum
Eggjastaðan er enn dekkri í Bandaríkjunum, þar var 57 hænsum slátrað í fyrra og eggjaverð hækkaði um heil 70%.
Á Spáni greindist flensan á 38 af 1.400 fuglabúum, og þykir bara sæmilega sloppið, en Spánverjar eru miklar eggjaætur. Ekki að furða kannski þar sem einn helsti þjóðarréttur Spánverja er spænska eggjakakan, en í hana fara á góðum degi ein 6 egg. Enda verpa spænskar hænur, sem eru jafnmargar og tvífætlingarnir sem landið yrkja, eða 47.000.000, einum 14 milljörðum eggja á ári.