Samstarf

Allt fyrir ferminguna á Boozt – vefverslun vikunnar á Vísi

Boozt.com
Fermingarnar eru á næsta leiti og á Boozt fást bæði föt og gjafir fyrir stóra daginn.
Fermingarnar eru á næsta leiti og á Boozt fást bæði föt og gjafir fyrir stóra daginn.

Hjá Boozt finnur þú allt til að fullkomna fermingarútlitið, við erum með kjóla, jakkaföt, fylgihluti, skó og förðunarvörur fyrir fermingarbarnið, flíkur fyrir systkini fermingarbarnsins og foreldrana og síðast en ekki síst hundruð mismunandi fermingargjafahugmynda.

Hér má skoða glæsilegt úrval af fermingarfatnaði og fylgihlutum.

Fyrir hana

Hvítir kjólar eru klassískir á fermingarstúlkuna og jakkaföt eru að sækja í sig veðrið hjá stelpunum. Það er flott og þægilegt að para jakkaföt við strigaskó og svo er hægt að bæta fylgihlutum við eins og skartgripum og hárböndum.

Fyrir hann

Fyrir strákana er flott skyrta, þægilegar buxur og adidas strigaskór samsetning sem getur ekki klikkað. Skart er alltaf að verða vinsælla hjá strákunum og flottar keðjur og hringar fullkomna fermingardressið. Mamma og pabbi finna líka allt sem þau vantar fyrir stóra daginn á Boozt.

Gjafahugmyndir

Hér má finna yfir hundrað spennandi gjafahugmyndir fyrir fermingarbarnið. Gjafabréf eru einnig stórsniðug þegar fólk er í vandræðum með hvað það á að gefa fermingarbarninu. Hægt er að velja milli 5.000kr, 10.000kr eða 15.000kr. Gjafabréfin er einstaklega þægileg lausn því kaupandinn fær prentútgáfu senda í tölvupósti og getur prentað gjafabréfið strax út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×