ÍBV sótti sigur í Mosfellsbæ og Þórsarar unnu í markaleik Smári Jökull Jónsson skrifar 11. mars 2023 17:31 Kristín Erna skoraði tvö mörk fyrir Eyjakonur í dag. Vísir/Bára Dröfn ÍBV lagði Aftureldingu í A-deild Lengjubikars kvenan í knattspyrnu í dag. Þá rigndi inn mörkum í leik Þórs og Þróttar í Egilshöllinni.
ÍBV og Afturelding mættust í Lengjubikar kvenna í dag en leikið var í Mosfellsbænum. ÍBV leikur í Bestu deild í sumar en Afturelding féll þaðan á síðustu leiktíð. Það voru Eyjakonur sem voru betri aðilinn í dag. Kristín Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik eftir sendingu Camila Pescatore og Kristín Erna bætti síðan við öðru marki í seinni hálfleik eftir sendingu Olga Sevcova. Undir lokin skoraði Thelma Sól Óðinsdóttir þriðja mark Eyjakvenna en Afturelding vildi meina að um rangstöðu hefði verið að ræða og var þremur rauðum spjöldum lyft á varamannabekk Mosfellinga í kjölfarið. Lokatölur 3-0 og ÍBV því með sex stig eftir þrjá leiki í riðlinum. Afturelding er án stiga á botninum. Í Laugardalnum mættust Þróttur Reykjavík og Þór frá Akureyri í Lengjubikar karla. Liðin voru í tveimur neðstu sætunum í riðli 4 í A-deildinni og leikurinn frekar þýðingarlítill hvað varðar stöðuna í riðlinum. Leikurinn var hins vegar mikil skemmtun. Þórsarar unnu 4-3 sigur og enda því með sex stig í riðlinum en Þróttur tapaði öllum leikjum sínum í riðlinum. Alexander Már Þorláksson skoraði tvö mörk fyrir Þór og Ýmir Már Geirsson og Nikola Kristinn Stojanovic skoruðu sitt hvort markið. Guðmundur Axel Hilmarsson skoraði tvö mörk fyrir Þrótt og Andi Morina eitt.
Íslenski boltinn ÍBV Afturelding Þróttur Reykjavík Þór Akureyri Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Sjá meira