Lífið

Þrennir þríburar fæddust um páskana

Ólafur Björn Sverrisson og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa
Rannveig Hildur Guðnadóttir deildi myndinni á Instagram.
Rannveig Hildur Guðnadóttir deildi myndinni á Instagram. Instagram

Þrennir þríburar fæddust á fæðingardeild Landspítalans um páskana í ár. Tvö ár eru frá því að þríburar fæddust hér á landi. Frá árinu 2006 hafa átján þríburafæðingar orðið á Íslandi, að meðaltali ein á ári.

Rannveig Hildur Guðmundsdóttir, sem er vinsæl á samfélagsmiðlinum Instagram, eignaðist þríbura fyrr í apríl: „Í gær þann 06.04.23 eftir að ég missti vatnið um morguninn komu í heiminn þrír fullkomnir, heilbrigðir einstaklingar.“

Þá var greint var frá því í gær að þær Ástrós Pétursdóttir og Margrét Finney Jónsdóttir hefðu eignast þríbura þann 12. apríl síðastliðinn. Þríburarnir eru afrakstur einkar vel heppnaðrar tæknifrjóvgunar, en þær óraði ekki fyrir því að þríburar væru möguleiki. Fjallað var um þær Ástrósu og Margréti í fréttum Stöðvar 2 í febrúar:

„12. apríl varð lífið fullkomið. Stelpurnar okkar eru komnar í heiminn. Nú takast þær á við hin ýmsu fyrirburaverkefni á milli knúsa hjá mömmum sínum. Halló heimur! Kveðja Salka Björt, Katrín Silfá og Elín Jökla,“ skrifuðu þær á Instagram:

Fréttastofu er ekki kunnugt um foreldra þriðju þríburanna sem fæddust um páskana en Þóra Steingrímsdóttir, prófessor og yfirlæknir á kvennadeild Landspítalans, staðfestir að þrennir þríburar hafi fæðst um páskana. 

„Þetta er óvenjulegt, en það er oft svona sem að statistíkin hegðar sér á Íslandi. Sjaldgæfir hlutir koma kannski í runu og svo gerist ekkert í mörg, mörg ár,“ segir Þóra í samtali við fréttastofu.

Hún bætir við að líkurnar á þríburafæðingu aukist töluvert við tæknifrjóvgun.

Eins og fyrr segir hafa átján þríburafæðingar orðið síðan 2006, að meðaltali ein á ári. Mest hafa fjórar slíkar fæðingar orðið á einu ári og oft verða þær núll. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.