Lífið

Aðal­steinn og Elísa­bet eignuðust dóttur

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Elísabet og Aðalsteinn hafa eignast sitt annað barn saman.
Elísabet og Aðalsteinn hafa eignast sitt annað barn saman. instagram

Fjölmiðlamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson og kærasta hans Elísabet Erlendsdóttir eignuðust dóttur nú á dögunum. Parið greinir frá komu stúlkunnar á Instagram.

„Hún er fullkomin,“ skrifar Elísabet undir fallega mynd af nýfæddri dömunni.

Stúlkan er þeirra annað barn saman en fyrir eiga þau soninn Stíg, þriggja ára. Þá á Aðalsteinn tvo drengi úr fyrra sambandi.

Aðalsteinn hefur komið víða við í fjölmiðlabransanum og vakti til að mynda mikla athygli fyrir aðkomu sína að fréttaskýringaþættinum Kveik. Í dag starfar Aðalsteinn sem blaðamaður á Heimildinni. Elísabet starfar sem vöruflokkastjóri hjá Ekrunni.


Tengdar fréttir

Aðalsteinn og Elísabet eignuðust dreng

Þau Aðalsteinn Kjartansson, fréttamaður á RÚV, og Elísabet Erlendsdóttir, starfsmaður Advania, eignuðust sitt fyrsta barn saman fyrir einni viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.