Yngsti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Jón Már Ferro skrifar 27. apríl 2023 17:03 Ryan Mason ásamt Gareth Bale eftir leik gegn Sheffield United í maí 2021. Justin Setterfield/Getty Ryan Mason tók við sem bráðabirgðarstjóri Tottenham í annað sinn síðastliðin mánudag. Fyrir tveimur árum og fjórum dögum varð hann yngsti knattspyrnustjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Þá var Mason einungis 29 ára gamall sem þykir ansi ungt, sérstaklega í ljósi þess að flestir atvinnumenn spila langt fram yfir þrítugsaldurinn. Sem leikmaður á Mason að baki 69 leiki í ensku úrvalsdeildinni en þurfti að hætta einungis, 26 ára, vegna höfuðkúpubrots sem hann varð fyrir í skallaeinvígi við Gary Cahill í tapi Hull gegn Chelsea, í maí 2017. Mason sem þá var leikmaður Hull segist muna eftir öllu sem gerðist fyrir og eftir skallaeinvígið örlagaríka. Stundin þegar fótboltaferill Ryan Mason endaði.Vísir/Getty Mason þekkir vel til hjá Tottenham og leikmannahóp liðsins sömuleiðis, ásamt því að hafa verið knattspyrnustjóri félagsins hefur hann verið aðstoðarþjálfari og yfirþjálfari knattspyrnuakademíunnar. Síðast þegar Mason var stjóri Tottenham þá vann liðið fjóra leiki og tapaði þremur leikjum. Nú er hann reynslunni ríkari og vonast til að geta snúið við slæmu gengi liðsins. „Ég hef verið nógu lengi í fótbolta til að vita að hlutirnir geta breyst mjög hratt. Ég hef trú á leikmannahóp mínum og því sem ég vil gera. Vonandi getum við fært það inn á völlinn,“ sagði Mason á blaðamannafundi fyrir leikinn í kvöld gegn Manchester United. Það er eins gott að hann breyti hlutunum til hins betra fljótt og örugglega, því Tottenham á einungis sex leiki eftir af ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Enski boltinn Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Handbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Fleiri fréttir Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Í beinni: Arsenal - Newcastle | Stórleikur á Emirates Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs West Ham búið að bjóða Potter starfið Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Amorim segir leikmenn sína hrædda Fá 21 árs Tékka í miðri markvarðakrísu Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn „Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Slæmt gengi gestanna heldur áfram Sjá meira