Maddison brenndi af víti í fallslag Leicester og Everton Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. maí 2023 21:03 Jordan Pickford varði víti frá James Maddison. Catherine Ivill/Getty Images Leicester City og Everton gerðu 2-2 jafntefli í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. James Maddison, leikmaður Leicester, brenndi af vítaspyrnu í stöðunni 2-1 fyrir Leicester.
Bæði lið eru í gríðarlega harðri fallbaráttu og þurfa sárlega á þremur stigum að halda. Dominic Calvert-Lewin kom gestunum í Everton yfir með marki úr vítaspyrnu þegar stundarfjórðungur var liðinn. Çağlar Söyüncü og Jamie Vardy svöruðu fyrir heimamenn sem voru allt í einu komnir 2-1 yfir þegar 33 mínútur voru liðnar. Það var svo í blálok fyrri hálfleiks sem heimaliðið fékk vítaspyrnu. Maddison, sem átti stoðsendinguna þegar Vardy skoraði, fór á punktinn. Jordan Pickford hafði hins vegar unnið heimavinnuna sína og varði spyrnuna. Staðan því enn 2-1 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. 'James Maddison - Stay - 60% centre' Jordan Pickford's water bottle coming through!#BBCFootball #LEIEVE pic.twitter.com/mfjuqMhMEF— Match of the Day (@BBCMOTD) May 1, 2023 Alex Iwobi jafnaði svo metin fyrir gestina í síðari hálfleik og þar við sat þótt bæði lið hafi átt fjöldann allan af misgóðum skotum. Lokatölur í Leicester 2-2 og bæði lið því áfram í bullandi fallbaráttu. Leicester er í 16. sæti með 30 stig á meðan Everton er í 19. sæti með 29 stig þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira