Maíspá Siggu Kling: Sporðdrekinn eins og leiftrandi og fegursta eldgos Sigga Kling skrifar 5. maí 2023 06:00 Elsku Sporðdrekinn minn, þú verður að sjá og athuga að þú ert eldgos og það vilja allir fara og sjá eldgos ef þeir mögulega geta. Annaðhvort bíðum við í langan tíma eftir eldgosi eða þau koma aftur og aftur með stuttu millibili. Núna er fulla fallega Sporðdrekatunglið 5. maí og skapar það mikið sjáanlegt fallegt eldgos hjá þér.
Sporðdrekinn er frá 24. október til 21. nóvember. Ef þú hefur verið í erfiðum kringumstæðum, þá rístu bara upp eins og Fönixinn úr öskunni. Það er eins og aflið sé með þér í öllum gírum sem þú vilt vera í og þá líka til að hreinsa út veikindi, andleg eða líkamleg, þú hefur kraftinn, aflið, powerið, þú hefur allt. Það verða sterkir möguleikar á því að þú flytjir þig til, með heimili, vinnu eða hvað sem er, því þú finnur að þú færð betri möguleika, eða þú varst fastur og sást ekki möguleikana. Maí verður þar af leiðandi eins og hjartalínurit, ekkert stopp á neinu og sérstaklega verður áþreifanlegt að veraldleg gæði eins og peningar og svo framvegis koma til þín, þó að þér finnist að það sé alveg á síðustu stundu. Þegar þér finnst þú sért að missa af einhverju, þá er það bara til þess að nýtt geti tekið meira pláss í þessu rauðglóandi lífi þínu. Ástin og ástríðan eru náttúrulega tengd plánetunni Venus sem er ríkjandi yfir þínu stjörnumerki og líka Nautsmerkinu. Þess vegna eru oft svo góð eða mögnuð samskipti á milli þessara merkja. Það er hægt að segja núna við þig að þú sért eins leiftrandi og fegursta eldgos. Gerðu litlar eða miklar breytingar á heimili þínu, fötum og útliti, eitt skref i einu, því þá ertu líka að hlúa að þér og þínu rými og með því nærðu betur í hringiðu Alheimsorkunnar til að sveifla þér á fulla ferð áfram. Knús og kossar, Sigga Kling Bill Gates, stofnandi Microsoft, 28. október Þórólfur Guðnason, fyrrum sóttvarnalæknir Íslands, 28. október Winona Ryder, leikkona, 29. október Kendall Jenner, raunveruleikastjarna, 3. nóvember Leonardo Dicaprio, leikari, 11. nóvember Whoopi Goldberg, leikkona, 13. nóvember Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, 20. nóvember Björk Guðmundsdóttir, söngkona, 21. nóvember
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf „Það má herma“ Tíska og hönnun Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Fleiri fréttir Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Sjá meira