„Hann er alltaf bara litli strákurinn minn“ Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 10. maí 2023 07:01 Hekla og Aron eiga fallegt mæðginasamband. „Ég er eiginlega ekkert að fatta það að hann sé vinsæll. Kannski líka að það er svo einfalt að vera þekktur á Íslandi. Hann gerir allt sem hann vill og það er ekkert vesen eða áreiti,“ segir Hekla Aðalsteinsdóttir flugfreyja og mamma tónlistarmannsins Arons Can Gultekin.
Aron varð landsþekktur á einni nóttu þegar hann skaust upp á stjörnuhimininn aðeins sextán ára gamall árið 2016 með laginu, Enginn mórall. Móðurhjartað hefur ef til vill slegið örlítið hraðar vegna aukinnar athygli og hraðri uppleið hjá ósjálfráða poppstjörnunni sem hún lýsir sem auðmjúkum dreng sem hefur verið laus við alla stjörnustæla. Hekla lýsir sambandi sínu og Arons sem nánu og traustu.Aðsend „Málið er að þetta var eins og lítill snjóbolti sem hefur rúllað áfram. Hann var búinn að gera fullt af tónlist aðeins þrettán eða fjórtán ára sem hann leyfði mér alltaf að heyra og sagðist alltaf ætla að gera eitthvað við. Svo kom bara næsta og næsta lag og allt í einu er hann orðinn eitthvað númer,“ segir Hekla og bætir við: „Maður áttar sig ekkert á þessu, hann er alltaf bara litli strákurinn minn.“ Aron tók meðal annars þátt í söngkeppni Samfés árið 2014. Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart? „Það sem hefur komið mér kannski mest á óvart er hvað fólk er hissa að ég sé mamma hans,“ segir Hekla og hlær. Hekla lýsir fyrstu árunum á ferlinum sem mikilli sprengingu sem tók tíma að venjast en hann hafi tæklað hlutina vel fyrir ungan aldur. „Hann hefur farið alveg upp og niður á yngri árum eins og allir en var þó rólegur og á jörðinni allan tímann,“ segir Hekla. Alla tíð hefur verið mikil tónlist í lífi Arons.Aðsend Fyrstu árin fór Hekla með honum á fjölda tónleika þar sem hann þurfti að fá leyfi til að vera inni á staðnum þar sem hann hafði ekki náð tilteknum aldri. „Ég fór með honum á fjölda tónleika en líka umboðsmaðurinn hans Óli Thors sem hefur haldið vel utan um hann. Síðan þegar hann og Erna kærastan hans voru orðin aðeins meira alvöru par fór hún að fara með honum á tónleikana og ég klippti á naflastrenginn,“ upplýsir Hekla glöð um sambandið sem hún á við fólkið í kringum hann. Aron og Hekla á góðri stundu í New York.Aðsend Can er borið fram, djan og þýðir líf á tyrknesku Aron er hálf tyrkneskur þar sem pabbi hans er þaðan en býr þó hér á landi og hefur meðal annars rekið nokkra veitingastaði í miðbæ Reykjavíkur. „Can er tyrkneskt nafn og er borið fram djan sem þýðir líf,“ segir Hekla sem bjó í Tyrklandi í tæp átta ár. Dóri DNA ræddi við Aron um það hvernig bera eigi fram nafnið Aron Can. Innslag úr þáttunum Rapp í Reykjavík á Stöð 2. „Hann byrjar um fimm eða sex ára á fullu í breikdansi hjá Natöshu í kramhúsinu og er að gera það gott í breikinu. Hann var með systur sinni og frænda þeirra oft úti á götu að dansa á mottu,“ rifjar Hekla upp. Hún segir tónlistina hafa komið snemma fram í honum. „Þetta er pínu í blóðinu.“ Mæðginarapp um daglega hluti Að sögn Heklu hefur alltaf verið mikil tónlist á heimilinu. Hún segir fjölskylduna hafa grínast með að rappa setningar um einfaldar athafnir daglegs líf sín á milli þegar Aron var yngri. „Við röppuðum til dæmis „eigum við að fara í sund“ og svarið var rappað til baka „það var rosa skemmtilegt“,“ segir Hekla og hlær. Hekla lýsir sambandi þeirra mæðgina sem afar nánu og traustu og segir Aron mikinn fjölskyldumann. „Við erum ofboðslega góðir vinir og hann er svolítill mömmustrákur, og hefur alltaf verið. Hann leitar til mín með allt, er duglegur að leyfa mér að hlusta á tónlistina sína áður en hún kemur út, en á það líka til að vara mig áður út af textunum,“ segir Hekla og heldur áfram: „Hann er mjög líkur mér að mörgu leyti og við eigum svipuð áhugamál og elskum góðan mat, tónlist og hreyfingu. Eina er að hann hefur ekki gott tímaskyn, við skulum orða það þannig,“ segir Hekla og hlær. Aron dreymdi á yngri árum að verða flugmaðurAðsend Aron og kærastan hans Erna Björnsdóttir eignuðust frumburðinn í síðasta mánuði og er drengurinn annað barnabarn Heklu. „Það er alveg geggjað,“ segir Hekla sem er orðin tvöföld amma og afar stolt. „Það er eitthvað alveg annað en að verða mamma.“ Hekla og Aron með son Arons.Aðsend Uppáhalds lög mömmu Arons Can: „Hérna eru mín uppáhalds og svo elska ég auðvitað nánast öll lögin, bara mis mikið.“ 1. Var þetta þá rétt 2. Sleikir á þér varirnar 3. Fremst þegar ég spila
Tónlist Ástin og lífið Tengdar fréttir Aron Can birti fyrstu feðgamyndina Tónlistarmaðurinn Aron Can birti fyrstu myndina af sér og frumburðinum á samfélagsmiðlum. 19. apríl 2023 10:27 Aron Can og Erna María eignuðust son Söngvarinn Aron Can og kærasta hans Erna María Björnsdóttir eignuðust son þann 3. apríl síðastliðinn. 8. apríl 2023 17:32 Mest lesið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Tónlist Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Tónlist Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Tónlist „Hún sagði já“ Lífið Léttist við stöðugt pizzuát Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Sjá meira
Aron Can birti fyrstu feðgamyndina Tónlistarmaðurinn Aron Can birti fyrstu myndina af sér og frumburðinum á samfélagsmiðlum. 19. apríl 2023 10:27
Aron Can og Erna María eignuðust son Söngvarinn Aron Can og kærasta hans Erna María Björnsdóttir eignuðust son þann 3. apríl síðastliðinn. 8. apríl 2023 17:32