Innherji

Al­vot­ech og Mar­el hald­a mark­aðn­um niðr­i en hækk­an­ir víða er­lend­is

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Hlutabréfamarkaðir eru gjarnan kenndir við birni þegar hlutabréfaverð fer sílækkandi, eins og hefur verið reyndin í Kauphöllinni á Íslandi síðustu misseri, en þar hefur verðþróun stærstu félaganna - Alvotech og Marel - ráðið miklu. 
Hlutabréfamarkaðir eru gjarnan kenndir við birni þegar hlutabréfaverð fer sílækkandi, eins og hefur verið reyndin í Kauphöllinni á Íslandi síðustu misseri, en þar hefur verðþróun stærstu félaganna - Alvotech og Marel - ráðið miklu. 

Erfiðleikar hjá tveimur stærstu félögunum í Kauphöllinni, Alvotech og Marel, hafa vegið þungt í þeim verðlækkunum sem hafa orðið á íslenska hlutabréfamarkaðnum frá áramótum á sama tíma og flestar erlendar hlutabréfavísitölur hafa hækkað myndarlega. Á meðan Seðlabanka Íslands hefur ekki tekist að ná böndum á háum verðbólguvæntingum eru merki um hagfelldari verðbólguþróun beggja vegna Atlantshafsins. Það hefur ýtt undir væntingar um meiri slaka í peningastefnu stærstu seðlabanka heims og stuðlað að hækkun á heimsvísitölu hlutabréfa, að sögn sjóðstjóra.


Tengdar fréttir

Hlut­a­bréf­a­mark­að­ur­inn van­met­inn um 20 prós­ent að með­al­tal­i

Úrvalsvísitalan ætti að ná fyrri hæðum – um 3.400 stig – við áramót ef þróun hlutabréfamarkaðarins verður með svipuðum hætti og í kringum síðustu aldamót. Miðað við reynsluna þá tók það vísitöluna tvö og hálft ár að ná fyrri hæðum eftir umtalsverðar lækkanir. Að meðaltali er markaðurinn vanmetinn um 20 prósent, miðað við hlutabréfagreiningar Jakobsson Capital.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×