Bíó og sjónvarp

Kvenkyns yfirmaður á skrifstofunni í fyrsta skipti

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Í áströlsku endurgerðinni mun Felicity Ward leika Hönnuh Howard, ígildi David Brent sem Ricky Gervais lék eftirminnilega.
Í áströlsku endurgerðinni mun Felicity Ward leika Hönnuh Howard, ígildi David Brent sem Ricky Gervais lék eftirminnilega. Samsett/Getty

Áströlsk endurgerð á bresku seríunni The Office er á leiðinni en hún verður sú fyrsta þar sem yfirmaðurinn verður kona. Ricky Gervais sem lék yfirmanninn David Brent eftirminnilega í upprunalegu útgáfunni hefur lýst yfir ánægju sinni með endurgerðina.

Bresku þættirnir The Office slógu í gegn árið 2001 þar sem Ricky Gervais fór á kostum sem hinn óþolandi David Brent, yfirmaður Slough-útibús pappírsfyrirtækisins Wernham Hogg. Þættirnir gengu þó aðeins í tvær seríur og einn jólaþátt en skutu Gervais og ungum Martin Freeman upp á stjörnuhimininn.

Ricky Gervais ásamt félögum sínum úr The Office með BAFTA verðlaun árið 2004. Lengst til hægri má sjá Martin Freeman og fyrir aftan hann Stephen Merchant.Getty/Steve Finn

Árið 2005 voru þættirnir endurgerðir í Bandaríkjunum þar sem grínleikarinn Steve Carell lék hinn uppáþrengjandi Michael Scott, ígildi Brent og yfirmann Scranton-útibús Dunder Mifflin. Bandaríska endurgerðin varð enn vinsælli en upprunalega serían og gekk í heilar níu þáttaraðir.

Síðan þá hafa komið út tíu endurgerðir í löndum um allan heim, þar á meðal hin finnska Konttori, hin þýska Stromberg og hin chíleska La Ofis. Í ár er búið að tilkynna um tvær nýjar endurgerðir, gríska útgáfu og ástralska. Sú síðarnefnda er merkileg fyrir þær sakir að í fyrsta skiptið verður yfirmaðurinn leikinn af konu.

Rainn Wilson, Steve Carell og John Krasinski sem léku allir í bandarísku endurgerðinni pósa saman.Getty/Robin Platzer

Áströlsk skrifstofupólitík eftir Covid-faraldur

Ástralski grínistinn Felicity Ward mun fara með hlutverk Hönnuh Howard, yfirmann fyrirtækisins Flinley Craddock.

Þættirnir gerast eftir Covid-faraldur þar sem Hannah fær þær fréttir að það eigi að loka hennar útibúi og starfsfólk eigi að vinna að heiman. Hún fer skrautlegar leiðir til að stöðva þau áform og halda starfsmannahópnum saman. Auk Ward munu ýmsir ástralskir og nýsjálenskir leikarar leika í þáttunum.

Felicity Ward er aðallega þekkt fyrir uppistand sitt.GEtty/Scott Campbell

Tökur á þáttunum hefjast í næsta mánuði og á serían að koma út á Amazon Prime á næsta ári.

Ricky Gervais hefur lýst yfir ánægju sinni með áströlsku endurgerðina. „Ég er mjög spenntur fyrir því að Ástralir endurgeri litla þáttinn minn frá aldamótum,“ sagði Gervais í tilkynningu. „Skrifstofupólitík hefur breyst töluvert á undanförnum tuttugu árum svo ég get ekki beðið eftir því að sjá hvernig þau fara með David Brent samtímans,“ sagði hann einnig.


Tengdar fréttir

The Office fer til Kína

Breski grínistinn Ricky Gervais segir að kínversk útgáfa af sjónvarpsþáttum sínum, The Office, sé í bígerð. Þættirnir slógu fyrst í gegn í Bretlandi með honum í aðalhlutverki. Síðan var gerð bandarísk útgáfa með Steve Carell í hlutverki skrifstofustjórans og núna er kínversk útgáfa í uppsiglingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.