Lífið

Kunnug­leg and­lit á djamminu í Hollywood í gamla daga

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Það var mikið um að vera á Hollywood í gamla daga. Hér er sigurvegari í Ungfrú Hollywood árið 1980.
Það var mikið um að vera á Hollywood í gamla daga. Hér er sigurvegari í Ungfrú Hollywood árið 1980. Björn G. Sigurðsson

„Nýr skemmtistaður, Hollywood, var opnaður i gærkvöldi með „grandeur" sem hæfir nafninu. Fullt var út að dyrum og margir urðu frá að hverfa.“ Þannig hófst frétt sem birtist á forsíðu Vísis þann 3. mars árið 1978.

Þeir sem stunduðu skemmtanalífið á áttunda og níunda áratug síðustu aldar eiga margir hverjir góðar minningar úr „Hollý“. Staðurinn sérhæfði sig í diskótónlist, tískusýningum og almennum glamúr og fullt var út úr dyrum frá fyrsta degi.

Áður en Hollywood opnaði var þar staður sem hét Sesar, en Ólafur Laufdal tók við rekstri hans, breytti staðnum og nafninu og rak hann með konu sinni Kristínu Ketilsdóttur.

Staðurinn var opinn alla daga vikunnar, nema á miðvikudögum því á þeim degi var bannað að selja og veita áfengi á Íslandi. Um helgar voru böllin, og staðurinn var stútfullur. Skemmtikraftar á borð við Ladda og Baldur Brjánsson tróðu upp, samtökin Módel ’79 stóðu fyrir tískusýningum á fimmtudögum og sunnudögum og þá má ekki gleyma keppninni um Ungfrú Hollywood, þar sem sigurvegarinn fékk bíl í verðlaun, eða ferð til Hollywood í Ameríku.

Valþór Ólason, maðurinn á bak við Facebook síðuna Hollywood minningar, rifjar tímann upp í samtali við Vísi.

„Ég man þetta eins og þetta hafi verið í gær. Partýið byrjaði strax í röðinni fyrir utan, það var trixið hjá Óla,“ segir hann. Menn létu það ekki á sig fá að bíða úti í vetrarfrostinu.

Andrúmloftið inni á staðnum var ólíkt því sem áður hafði þekkst hér á landi en Hollywood var fyrsti staðurinn til að vera með ljósadansgólf og myndbandstæki og á veggnum voru sjónvörp sem sýndu tónlistarmyndbönd. Allt var þetta í anda heitustu diskóklúbbanna úti í heimi, á borð við Stúdíó 54 í New York.

„Ljósagólfið stendur alveg upp úr, það var alltaf gaman að sprikla á því. Þetta var allt kóperað beint frá Bandaríkjunum.“

Vinskapur og gleði

Plötusnúðar á borð við Leópold Sveinsson, Vilhjálm Ástráðsson, Ásgeir Tómasson og Gísla Svein Loftsson þeyttu skífum í diskóbúrinu og fólk sendi hvort öðru ástar- og afmæliskveðjur yfir dansgólfið. 

„Það var alltaf verið að rétta miða yfir gluggann og ég man eftir því þegar ég var að spila að í lok kvöldsins var oft bunki af miðum eftir í búrinu. Kveðjur sem var hvíslað yfir dansgólfið í vangalögunum," segir Valþór.

Árið 1987 seldi Ólafur Laufdal reksturinn og breytti staðnum í veitingahúsið Broadway. Á facebooksíðunni Hollywood minningar, sem Valþór setti á laggirnar árið 2008, má finna fjölmargar myndir og blaðaúrklippur frá „gullárum" Hollywood.

Þegar Valþór er spurður að því hvað standi mest upp úr á þessum tíma þá stendur ekki á svarinu.

 „Kærleikurinn. Vinskapurinn og gleðin. Þetta snerist ekki um fyllerí, fólk var ekki að drekka til að vera ofurölvi, heldur til að vera hresst og skemmta sér. Þetta var æðislegur tími.“

Meðfylgjandi myndir voru teknar af Birni G. Sigurðssyni sem var tíður gestur í Hollywood á sínum tíma.

Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Haukur Morthens tekur lagið.Björn G. Sigurðsson
Þorgrímur Þráinsson í góðum gír.Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson
Björn G. Sigurðsson

Tengdar fréttir

Svona litu íslensk fangelsi út árið 1988

Árið 1988 voru fimm fangelsi starfrækt á Íslandi; Litla Hraun, Kvíabryggja, Hegningarhúsið, Síðumúlafangelsi og fangelsið á Akureyri. Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari eyddi degi á Litla Hrauni og í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og náði þar einstökum ljósmyndum sem sýna vistarverurnar í fangelsunum á þessum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×