Lífið

Stjörnulífið: Bahama partý Harðar Björgvins og Ungfrú Ísland gæsuð

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnulífið var sólríkt og suðrænt þessa vikuna með hækkandi sól og hitatölum.
Stjörnulífið var sólríkt og suðrænt þessa vikuna með hækkandi sól og hitatölum.

Sól og hækkandi hitatölur glöddu landsmenn liðna viku með tilheyrandi útiveru og sumarstemmningu. Þar má nefna suðræna afmælisveislu knattspyrnukappans Harðar Björgvins Magnússonar og Viktors Sveinssonar athafnamanns, gæsun og Sjómannadaginn.

Suðræn stemmning í Garðabæ

Hörður Björgvin og unnusta hans Móeiður Lárusdóttir eru nýlega komin úr rómantískri ferð frá eyjunni Bahama og má ætla að Hörður hafi ekki viljað vakna frá þeim draumi og fært herlegheitin til Íslands. 

Hörður og Viktor fögnuðu þrjátíu árum og mættu eins klæddir með blómakransa um hálsinn í veisluna sem haldin var á veitingastaðnum Sjáland í Garðbæ. Þá skemmtu tónlistarmennirnir Huginn, Joey Christ, Ingi Baure og Dj. Steven veislugestum.

Handboltakappinn Agnar Smári Jónsson tók þema kvöldsins alla leið og mætti í strápilsi með kókoshnetuskeljar fyrir brjóstunum.Agnar Smári
Siggi Bond og Lexi blaze, kærasti tónlistarkonunnar Svölu Björgvins.Agnar Smári
Agnar Smári

Draumadagar á Bahama

Hörður Björgvin og Móeiður kvöddu Bahama í vikunni.

Fegurðardrottning gæsuð

Arna Ýr Jónsdóttir fyrrum Ungfrú Ísland var gæsuð af vinkonum sínum um helgina. Dagurinn byrjaði á dekri í Laugum Spa og pole-kennslu. Undralandsbræður sem samanstendur af leikaranum Aroni Má Ólafssyni, betur þekkt sem Aron Mola, og Arnari Þór Ólafssyni komu og skemmtu gæsahópnum. 

Sól og ást á Akureyri

Ofurhlaupakonan Mari Jaersk og Njörður Lúðvíksson stungu af í sólina á Akureyri þar sem þau áttu notalegan dag í Skógarböðunum.

Fjölskyldan norður

Tískudrottningin Elísabet Gunnars og eiginmaður hennar Gunnar Steinn Jónsson nutu einnig sólarinnar á Akureyri liðna helgi þar sem þau gátu notið dögurðar utandyra.

Skálað í vindli

Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar skálaði í vindli fyrir hlustendum sínum.

Erfiður maí 

Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur og áhrifaldur segir lífið snúast um kúkableyjur og knús. 

„Dagdreymin frá niðurgangspest, streptakokkum, veirusýkingu, hitapest, hósta og engum svefni í grámyglu, slyddu, snjó, gulri viðvörun og rigningu með úfið hár, bauga, í engum buxum og blautum sokkum,“ skrifar Erna við mynd af sér í þykkri úlpu í rigningu og roki.

Annie Mist komin á heimsleikana í Crossfit

CrossFit stjarnan Annie Mist Þórisdóttir tryggði sér sæti á heimsleikunum í CrossFit um helgina eftir frábæran árangur á undan­úr­slita­móti í Ber­lín.

Sundföt í stíl í brúðkaupsferðinni

Þjálfarinn og dansarinn Sandra Björg Helgadóttir  og eiginmaður hennar Hilmar Arnarson eru stödd um þessar mundir í brúðkaupsferð sinni á Cabo í Kaliforníu, ásamt því að fagna 33 ára afmæli Hilmars. Sandra birti skemmtilega mynd af þeim hjónum þar sem þau voru klædd í sundföt í stíl.

Stefnumót í náttúrunni

Listaparið Íris Tanja Flygenring og Elín Ey áttu fullkomið stefnumót um helgina.

Nýtt lag hjá Patrik

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason gaf út nýtt lag á dögunum, Fílessa lykt. 

Fullkominn afmælisdagur

Leikkonan María Birta Bjarnadóttir átti fullkominn afmælisdag þökk sé eiginmanninum Ella Egilssyni og dóttur þeirra, en María varð 35 ára á dögunum. 

Sjómönnum landsins fagnað

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra fagnaði Sjómannadeginum í gær og birti myndir af makríltúr sem hún fór í um árið.

Mæðgur og nöfnur

Tónlistarkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir birti fallega mynd af sér og yngsta gullinu og nöfnu sinni, Jóhönnu Guðrúnu eins árs.

Eyðimerkur myndataka LXS

Raunveruleikastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir, Kristín Pétursdóttir og Birgitta Líf Björnsdóttir birtu seiðandi myndir úr eyðimörkinni á Kanarí sem voru teknar í ferð þeirra vinkvenna fyrr á árinu.

Óvænt ferð til Madrid

Pétur Björgvin Sveinsson unnusti ljósmyndarans Helga Ómarssonar kom honum á óvart með utanlandsferð til Madrid á Spáni í tilefni af hans 3. júní.


Tengdar fréttir

Exit-stemmning í fjölsóttu afmæli Gillz

Athafna- og útvarpsmaðurinn Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz, hélt heljarinnar afmælispartí í tilfefni af 43 ára afmæli sínu um helgina þar sem þema veislunnar var í anda norsku Exit þáttanna.

Stjörnulífið: Gellufrí, Eurovision og Björk fékk sér ís

Liðin vika einkenndist af Eurovision, suðrænni skemmtun, skvísulátum og almennri gleði. Þar má nefna árshátíð Þjóðleikhússins sem fór fram í Barcelona og virtist hin glæsilegasta, vinkonuhópar skemmtu sér á tónleikum poppstjörnunnar Beyoncé í Stokkhólmi og þemaafmæli Egils Einarssonar, Gillz, í anda norsku þáttaraðanna Exit á veitingastaðnum Sjálandi í Garðabæ. Svo fékk Björk Guðmundsdóttir sér ís.

Stjörnulífið: Gæsun, GusGus og gleði

Reykjavíkurborg iðaði af menningu og lífi um helgina í tilefni af HönnunarMars og áhrifavaldar landsins nutu sín í botn á hinum ýmsu viðburðum. Mikið var um árshátíðir og veisluhöld og hljómsveitin GusGus hélt ferna tónleika á Nasa, þar sem stiginn var trylltur dans. Margir fylgdust svo grant með krýningu Karls III Bretakonungs og klæddu sig upp í tilefni af því. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.