Skoðun

Enginn setur börnin sín í bátinn nema sjórinn sé öruggari en landið

Nína Helgadóttir skrifar

Aldrei í sögunni hefur fleira fólk verið á flótta í heiminum. Það er rétt að minna á þá dapurlegu staðreynd í dag, þann 20. júní, á alþjóðadegi flóttafólks, þegar ljósi er varpað á þann vanda sem flóttafólk stendur frammi fyrir. Foreldrar, börn, systkini, ömmur og afar hafa hrakist heiman frá sér. Frá ættingjum, skólagöngu, vinum, atvinnu, eignum, ættjörð sinni og öðru því sem skiptir fólk máli.

Mörg þeirra sem eru nærri okkar heimshluta hafa lagt af stað og freistað þess að ná yfir djúp Miðjarðarhafsins. Ljóðskáldið Warsan Shire, sem er af sómölsk-breskum uppruna, lýsir hörmungum flóttans á raunsannan hátt með augum þess sem flýr í ljóðinu hér fyrir neðan og bendir á þá staðreynd að, „enginn setur börnin sín í bátinn nema sjórinn sé öruggari en landið“.

Það er lífshættulegt að flýja langar leiðir. Á Miðjarðarhafinu hafa meira en 25.000 manns drukknað síðasta áratuginn í leitinni að öruggu skjóli. Það slagar hátt í íbúafjölda alls Hafnarfjarðar. Og enn er hundruða saknað frá því síðustu viku.

En það er langt í frá að allt flóttafólk fari um svo langan veg í leit að öruggu skjóli. Rúmur helmingur þeirra er á vergangi í eigin landi. Tveir þriðju þeirra sem flýja yfir landamæri eigin lands dvelja í næstu nágrannalöndum, sem oft eru meðal fátækustu ríkja heims. Í Líbanon er fjórði hver íbúi flóttamaður. Hver og einn getur gert sér að leik að reikna út hversu margt flóttafólk væri hér ef hlutfallið væri eins hér. Til Íslands leitar brotabrot af þeirri tölu.

Sá fjöldi fólks sem hefur þurft að flýja heimahagana telur samtals 108,4 milljónir og meirihlutinn er konur og börn. Þessi tala er sambærileg við íbúafjölda Íslands, sinnum 288. Hugsið ykkur! Þetta eru miklar tölur en á bak við þær eru andlit, manneskjur af holdi og blóði sem fara út í óvissuna til að bjarga sér og sínum. Manneskjur eins ólíkar eins og þær geta verið en deila þó svo margar sömu aðstæðum. Mikið af börnum, gömlu fólki, mörg lasburða, flest sakna heimahaganna, sum eru hrædd og flest óörugg. Á þeim brenna þrúgandi spurningar eins og „hvar bíður okkar skjól?“ og „hvar geta börnin okkar lifað mannsæmandi og öruggu lífi?“.

Þeirra vandi er viðfangsefni heimsins alls. Við erum hluti af honum. Tökum vel á móti flóttafólki!

Warsan Shire -  HEIMA

enginn fer að heiman

nema heima sé hákarlskjaftur

þú flýrð ekki burt úr borginni

nema borgin sé þegar flúin



nágrannar þínir hlaupa hraðar en þú

með blóðugan kökkinn í hálsinum

og strákurinn sem var með þér í skóla

þessi sem kyssti þig föla

í felum á bakvið blikkverksmiðjuna

heldur á byssu sem er stærri en hann sjálfur

þú ferð ekki að heiman

nema heima reki þig burt



Enginn fer að heiman

nema þú sért með heima á hælunum

eld á iljum

sjóðandi blóð í maga

aldrei kom þér annað eins til hugar

þar til sviðin sveðjueggin

ógnaði hálsi þínum

og jafnvel þá

reyndirðu að umla þjóðsönginn

og reifst svo passann í tætlur inni á flugvallarklósetti

og grést hvert pappírssnifsi

sem þú beist í því það staðfesti ennþá betur

að þú færir aldrei til baka



þið verðið að skilja

að enginn setur börnin sín í bátinn

nema sjórinn sé öruggari en landið

enginn brennir lófana

undir lestum

og lestarvögnum

enginn eyðir sólarhringum í iðrum flutningabíls

borðandi dagblöð nema allir þeir kílómetrar

þýði annað og meira en að ferðast

enginn skríður undir girðingar

engan dreymir um barsmíðar

samúð



engan dreymir um líf í flóttamannabúðum

eða innanklæðaleit sem endar án klæða

og líkama í sárum

og fangelsi

því fangelsi er alltaf skárra

en logandi borg

og einn lítill fangavörður

í nóttinni

alltaf betri en farmur af fullorðnum mönnum

sem allir líkjast föður þínum í framan

engin gæti afborið það

engin gæti kyngt því

engin húð er til nógu sterk



og allt þetta

enga svarta hér

flóttamenn

útlendingapakk

hælisleitendur

mættir hingað á spenann

niggarar með alla vasa tóma

og skrýtna lykt

villimenn

búnir að rústa landinu sínu

og komnir til að rústa okkar

hvernig bara getið þið

notað þessi orð

og gefið okkur þennan svip

þið haldið kannski að skammirnar

séu skárri en að missa handlegg



að orðin séu skárri

en fjórtán menn á milli

fóta þinna

eða auðveldra sé fyrir okkur

að kyngja skítkastinu frá ykkur

heldur en gúmmíi

heldur en beinum

heldur en barninu okkar í pörtum

mig langar heim

en heima er hákarlskjaftur

heima er hlaupið á byssu

og enginn myndi fara að heiman

nema heima myndi elta þig niður að strönd

nema heima myndi segja hlauptu hraðar

skildu fötin eftir

skríddu yfir eyðimörkina

svamlaðu yfir höfin

drukknaðu

bjargaðu þér

bilastu úr hungri

betlaðu

kyngdu öllu stolti

gerðu allt til að komast af



Enginn fer að heiman þar til heima

er sveitt og loðin rödd í eyra þínu

sem segir

farðu

farðu frá mér núna

ég veit ekki hvað ég er orðin

ég veit bara að allstaðar annarstaðar

ertu öruggari en hjá mér

Þýð. Hallgrímur Helgason

Höfundur er teymisstjóri í málefnum flóttafólks hjá Rauða krossinum á Íslandi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×