Lífið

Júlíspá Siggu Kling: Hugsaðu um gamla fólkið í fjölskyldunni

Sigga Kling skrifar

Elsku Tvíburinn minn, það er eins og það togist í þér tvö öfl, hið dökka og erfiða á móti hinu bjartsýna kraftmikla og skemmtilega. Það er svo mikilvægt fyrir þig að eitra fyrir hinu dökka, gefa því enga næringu og ekkert fóður. Þetta er svipað sögunni með hvíta og fallega úlfinn á hægri öxl og hinn svarta og grimma á vinstri öxl.

  • Tvíburi er frá 21. maí til 21. júní.

Gefðu þessum vinstra megin enga athygli, ef hann er að senda þér neikvæð skilaboð aftur og aftur þá skalt þú sem hin sterka sál ýta á delete takkann ræða ekki meira hvorki við þennan kraft eða við aðra um þennan kraft. Alheimurinn sjálfur er búin til úr svörtum eða hvítum öflum. 

Þú ert hér með kjörinn leiðtogi til þess að breiða út regnbogann og muna það að gefa öðrum þau tækifæri sem þú hefðir viljað fá einhvern tímann áður. Þér er boðið upp á skemmtilegt sumar og þú munt nýta þér það bæði í ferðalögum og tengingum við fólk sem hefur vald eða getur gefið þér einhvers konar stöðu eða status sem að þú ert að leita eftir. Ástin verður erfið ef þú gefur dökka úlfinum að borða en þar sem þú ætlar að hafa gaman og gleyma því að hlutirnir hafa ekki alltaf leikið við þig í ástinni. 

Því ástin tengist sannri vináttu, virðingu og þörfinni fyrir að vera saman. Þó að þú hafir mjög miklar áhyggjur af einhverjum nákomnum þá verðu sú persóna að ákveða sjálf hvort hún vilji þiggja hjálp eða hjálpa sér sjálf. Ef það eru veikindi, líkamleg eða andleg hjá þessari manneskju þá er nauðsyn að þú gefir meira til hennar en þú þarft.

Þú skalt líka hugsa um gamla fólkið í fjölskyldunni því tíminn er að líða hraðar en þú heldur. Líf þitt verður síbreytilegt því þú hefur hugrekki til að bera, það stefnir beint fram á við og hindranir eru vel yfirstíganlegar. Ekkert er ómögulegt PUNKTUR.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Sir Ian Mckellen, leikari, 25. maí
  • Anita Briem, leikkona, 29. maí
  • Eyþór Ingi Gunnlaugsson, söngvari, 29. maí
  • Marilyn Monroe, leikkona, 1. júní
  • Donald Trump, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 14. júní
  • Xi Jinping, stjórnmálamaður, 15. júní
  • Boris Johnson, stjórnmálamaður, 19. júní
  • Dagur B Eggertsson, borgarstjóri, 19. júní





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.