Lífið

Júlíspá Siggu Kling: Kláraðu það sem þú ert byrjaður á

Sigga Kling skrifar

Elsku Meyjan mín, það verður dálítill hraði og spenna tengd þér þessa dagana. Mánuðurinn byrjar með fullu tungli í Steingeit svo það er ágætt að íhuga að vera allavegana á þeim hraða að þú getir bremsað snöggt og örugglega ef þú þarft þess.

  • Meyjan er frá 23. ágúst til 22. september.

Því að þessi skemmtilega spenna sem er tengd einhverju sem er spennandi, gæti mögulega fært þér þreytu og þunga ef þú hugsar ekki vel um sjálfa þig. Sú staða er sterk að þú munt rifta einhverskonar sambandi sem er mikilvægt eða reyna allavegana að loka því. Öll þannig vanhugsuð fljótfærni er ekki það rétta fyrir þig svo vertu þolinmóðari. Það er verið að rífast um þig, það gætu verið vinahópar eða fjölskylda. Í þessari stöðu væri ágætt að vera klónaður svo þú gætir þóknast öllum. 

Gerðu það sem þér finnst skemmtilegt, sæktu í þá sem að hressa þig við og gefa þér bita af sínum hressleika þá fer þetta allt saman vel. Velmegun er í sjónmáli það er ágóði, gæti verið eitthvað sem tengist áhættu, en útkoman er þér í hag. Þú færð hugboð sem er það sem að spámenn fá, boð til hugans og þú gerir eitthvað svo merkilegt bara út af því að þú fórst eftir innri tilfinningu. 

Þetta verður eins og þú sért í póker og þú ert með réttu spilin á hendinni. Þú ert að breyta um stíl, liti, það gæti verið á heimili, fötum, eða bara öllu mögulegu sem tengist veraldlegum hlutum. Þú breytir öllu með ofsa hraða og nýtur þess að hafa tekið svona skemmtilegar ákvarðanir til að byggja þig upp. 

Kláraðu það sem þú ert byrjaður á, þá birtist þér annað verkefni og það er ekki hægt að segja að þú sitjir auðum höndum í sumar.

Orkan þín verður eins og hvirfilvindur. Og þó að þú gætir séð eftir einhverju þá er það bara partur af því að lifa.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Manuela Ósk Harðardóttir, fyrrverandi fegurðardrottning, 29. ágúst
  • Cameron Diaz, leikkona, 30. ágúst
  • Árni Páll Árnason (Herra Hnetusmjör), rappari, 31. ágúst
  • Keanu Reeves, leikari, 2. september
  • Beyoncé Giselle Knowles-Carter, söngkona, 4. september
  • Beyoncé Knowles, söngkona, 4. september
  • Ari Eldjárn, grínisti, 5.september
  • Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður, 16. september
  • Annie Mist Þórisdóttir, crossfit stjarna, 18. september





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.