Lífið

Júlíspá Siggu Kling: Stjórnsemi er kannski þinn helsti galli

Sigga Kling skrifar

Elsku Fiskurinn minn, ekki trúa öllu sem þér er sagt og passaðu þig á áráttu hugsunum sem þú átt erfitt með að stjórna. Þú þarft að vera opinn í allar áttir og taka inn aðrar skoðanir. Þú hefur svo mikla aðlögunar hæfni að það er nákvæmlega sama hvert þú verður settur eða hvar það er, þú finnur réttu leiðina.

  • Fiskarnir eru frá 19. febrúar til 20. mars.

Hins vegar gæti það haldið þér eitthvað niðri að vera stífur á einhverri skoðun eða skoðunum sem að hugnast ekki því fólki sem er í kringum þig. Þú þarft að taka sálfræðinginn út sem býr í þér elsku hjarta, og fara samningaleiðina.

Þú þarft kannski að gefa eitthvað eftir en þú ræður nú léttilega við það. Þú hefur elskulegt og ástríkt eðli og dásamlega rómantískur en samt hræðast þig nokkuð margir. Það verður ævintýri líkast, þín vegferð á næstunni og það verður vegna þess að þú ákveður það. Þú bæði setur þig á staði þar sem er gaman, mikið líf þú hefur ástríðu fyrir því að búa til ævintýri og það er nákvæmlega það sem er að gerast hjá þér. 

Stjórnsemi er kannski þinn helsti galli því það stressar þig bara ef að þú heldur að lífið gangi ekki sinn vana gang nema þú sért með afskipti af því. Þér finnst það ekkert sérstaklega merkilegt þó að þú verðir óberandi og fólk líti upp til þín og dáist að þér því þú hefur svo sannarlega unnið fyrir því. Ef þú ert að leita að ástinni þá skaltu ekki bjóða inn í líf þitt manneskju, ástargyðju eða goði sem er með tómt vesen. Þú þarft öruggan grunn.

Erfiðleikar þínir eru að baki og þú uppskerð árangur og virðingu. Ástin mun blómstra og framundan er sterkt tímabil sem færir þér þar sem þér vantar.

Knús og kossar

Sigga Kling

  • Jon Bon Jovi, söngvari 2. mars
  • Rebel Wilson, leikkona 2. mars
  • James Arthur, söngvari 2.mars
  • Daniel Craig, leikkari, 2. mars
  • Jessica Biel, leikkona, 3. mars
  • Ronan Keating, söngvari, 3.mars
  • Robert Kardashian, raunveruleikaþáttastjarna, 17. mars
  • Adam Levine, söngvari, 18.mars
  • Queen Latifah, söngkona, 18. mars
  • Vanessa Williams, leikkona, 18. mars
  • Grover Cleveland, fyrrum forseti Bandaríkjanna, 18. mars





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.