Miðvörðurinn Timber mun spila sem bakvörður hjá Arsenal Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 9. júlí 2023 23:31 Timber mun færa sig úr miðverðinum hjá Ajax yfir í bakvörðinn hjá Arsenal. Michael Bulder/Getty Images Liðnir eru dagarnir þar sem bakverðir voru hvað mest ógnandi leikmennirnir á knattspyrnuvellinum. Nú snýst allt um að stjórna leiknum og verjast skyndisóknum. Arsenal mun því nota miðvörðinn og miðjumanninn Jurriën Timber sem bakvörð.
Frá þessu er greint á Sky Sports en þar er farið yfir þróun bakvarða innan knattspyrnunnar og hvaða hlutverki þeir gegna í dag. Timber gekk nýverið í raðir Skyttanna frá Ajax og mun þessi 35 milljón punda miðvörður og miðjumaður spila bakvörð hjá sínu nýja félagi. Hann verður ekki fyrsti leikmaðurinn sem Mikel Arteta kaupir og setur í óvanalega stöðu. Miðvörðurinn Ben White var til að mynda keyptur dýrum dómum frá Brighton & Hove Albion til þess eins að spila hægri bakvörð. Timber passar vel inn í það sem Arteta vill gera með Arsenal en það kom þó verulega á óvart þegar Arsenal tilkynnti fjölmiðlum að planið væri að nýta hæfileika hans í bakverði. Talið var að hann myndi mögulega fylla skarð Granit Xhaka á miðjunni en sá fór til Bayer Leverkusen á dögunum. Þá er talið að Thomas Partey yfirgefi England í glugganum. Hollendingurinn er með aðeins einn leik í hægri bakverði á ferilskránni, sá kom í 4-0 tapi gegn Frakklandi. Breyting á leikstíl Undanfarin ár hafa bakverði á borð við Trent Alexander-Arnold og Andrew Robertson hjá Liverpool verið með heitustu leikmönnum Evrópu. Um er að ræða bakverði sem fara hátt upp völlinn til að taka þátt í sóknarleik síns liðs. Nú er hins vegar orðin breyting á. Jurriën Timber is an interesting signing by Arsenal given that the intention seems to be to play him at right-back. Shows how moving a defender into midfield is also impacting the profile of the full-back who now has to be able to operate in a back three. https://t.co/CRuZV6soLx— Adam Bate (@ghostgoal) July 7, 2023 Það virðist sem „gamla skóla“ bakverðir séu að koma aftur í tísku. Þó ekki í þeim skilningi að þeir stöðvi á miðlínunni og kunni bara að tækla. Nú er ætlast til að bakverðir séu enn betri á boltanum en áður og stígi upp á miðjuna þegar það á við. Sem dæmi má nefna að Alexander-Arnold var farinn að gera þetta undir lok síðustu leiktíðar á meðan Oleksandr Zinchenko færði sig ítrekað inn á miðjuna úr vinstri bakverðinum hjá Arsenal. Pep Guardiola hefur prófað margar útfærslur af þessu hjá Manchester City. Fyrst færði João Cancelo sig úr bakverðinum og alla leið upp í stöðu sóknarþenkjandi miðjumanns. Pep breytti svo til á síðustu leiktíð og lét John Stones færa sig úr miðverðinum og upp á miðju. Bæði Breiðablik og Víkingur hafa svo prófað ýmsar útfærslur á þessu hér á landi. Maðurinn sem breytti stöðunni Segja má að Philipp Lahm, undir stjórn Guardiola hjá Bayern München, hafi breytt stöðu hins hefðbundna bakvarðar. „Á síðustu tíu árum hafa bakverðir verið mjög íþróttamannslegir og sterkir líkamlega. Nú er það að breytast, þetta eru tæknilega betri leikmenn,“ sagði hinn 39 ára gamli Lahm í viðtali við Sky Sports. Hvað veldur er stóra spurningin hér. Mögulega vilja allir þjálfarar herma eftir því sem Pep Guardiola gerir, mögulega spilar aukin tölfræði og gögn þátt en menn endast ekki lengi á hæsta stigi fótboltans ef þeir eru að hlaupa jafn mikið og af jafn miklum ákafa og tvíeykið hjá Liverpool hefur gert undanfarin ár. Svo má að endingu mögulega færa rök fyrir því að fótboltinn, líkt og allt annað í lífinu, fer í hringi. Nú er í tísku að verjast betur en undanfarin ár, eftir nokkur ár verður það orðið leiðingjarnt og þá verður í tísku að sækja á sem flestum leikmönnum og skora mörk. Pep er til að mynda þegar byrjaður að breyta sinni hugmyndafræði en nú vill hann fjóra varnarmenn sem geta allir unnið návígi ásamt því að vera góðir á boltann. Það er ástæðan fyrir því að Nathan Aké var valinn fram yfir Cancelo og að Manuel Akanji var tekinn fram yfir Kyle Walker í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira