Ása Steinars við gosstöðvarnar: „Ég held að einhver muni deyja hér í kvöld“ Íris Hauksdóttir skrifar 14. júlí 2023 20:01 Ása er þrælvön þegar kemur að því að ganga að og mynda gos en segir upplifunina í þetta skipti ólíka fyrri gosum hér á landi. Ása Steinars Ævintýrakonan og ferðaljósmyndarinn Ása Steinars lét sitt ekki eftir liggja og arkaði upp að eldgosinu í góðra vina hópi í fyrradag. Upplifunina segir hún stórfenglega þó mikill hópur fólks sýni glæfralega hegðun í námundan við gosið.
Ása hefur fyrir löngu getið sér gott orð fyrir stórbrotnar landslagsmyndir bæði hérlendis sem og víða um heim. Myndir hennar hafa meðal annars fengið birtingu í tískutímaritinu Vogue þar sem hún starfar að hluta til samhliða því að ferðast um heiminn með myndavélina að vopni ásamt óteljandi drónum sem hún nýtir listilega við myndefni sitt. Fór á fjallahjóli að gosstöðvunum Ása er þrælvön þegar kemur að því að ganga að og mynda gos en segir upplifunina í þetta skipti ólíka fyrri gosum hér á landi. „Þetta er löng ganga, en hún er á nokkuð jafnsléttu. Ég ákvað að fara á fjallahjóli frekar en að labba. Leiðin að eldgosinu tók alveg á. Það er búið að setja lausamöl á slóðann þannig hjólin voru svolítið að spóla þar. Á tímabili vorum við á sama hraða og göngufólk og við vorum að hugsa um að skilja hjólin eftir. En svo batnaði slóðinn þar sem er ekki búið að setja lausamöl. Síðustu tvo kílómetrana að gosinu komumst við ekki lengra með hjólin og skildum þau eftir og löbbuðum restina af leiðinni. Göngugarpar flykktust að gosinu eins og flugur í átt að ljósi segir Ása.Ása Steinars Óvíst hvaða langtímaáhrif mengunin hefur á heilsuna Það voru ekki kjöraðstæður þar sem það var norðanátt og gönguleiðin vísar í suður. Á tímabili er maður alveg að ganga í reyknum og menguninni. Í gegnum þau tímabil settum við upp gasgrímur og reyndum að hjóla eins hratt og við gátum. Þetta er gífurlega mikill reykur og mengun þannig ég var frekar hissa að þeir skyldu opna gönguleið í suðri þegar það er norðanátt í viku. Því fólk sem fer hægt yfir er ansi lengi í miðjum reyk. Við vitum ekki alveg hvaða langtíma áhrif það getur haft á heilsuna.“ View this post on Instagram A post shared by Asa Steinars Iceland (@asasteinars) Ása segir þó bakarleiðina hafi reynst mun greiðfærari. „Já leiðin tilbaka var mun auðveldari, þá vorum við með vindinn í bakið og vorum ansi snögg út. Þannig í heildina var þetta bara ótrúlega skemmtileg og tók vel á. Það var ansi mögnuð upplifun að nálgast gosið, það er eitthvað við þetta gos sem er öðruvísi en þau fyrri. Eldgosið er á gróinni hraunbreiðu sem liggur á jafnsléttu.Ása Steinars Eldgosið er sem stendur á gróinni hraunbreiðu sem liggur á jafnsléttu. Þegar við nálguðumst það, þá fundum við öll fyrir kraftinum. Það er eins og það sé einhver titringur í jörðinni. Við vorum þrjú saman og fundum öll fyrir þessu. Við lögðum eyrun að jörðinni og maður fann alveg drunur. Það er erfitt að lýsa því. Ég man ekki eftir þessari tilfinningu með hin gosin. Það er eins og maður sé að standa á frekar jarðfræðilega virkum stað. Fólk áttar sig ekki á að gígar geta brotnað og hraun gusast upp Hvernig var fólk að hegða sér? „Það var mjög mismunandi,“ segir Ása og heldur áfram. „Flestir héldu góða fjarlægð við gosið, voru með nesti, gítar og munnhörpu. Þannig við vorum með lifandi tónlist að horfa á gosið. En það kom á óvart hversu margir voru alveg við gígjinn. Fólk var að labba í gegnum gróðureldana og reykinn og síðan fara alveg að gígnum. Það er eins og fólk hafi ekki áttað sig á að þessir gígar geta brotnað og hraun gusast niður. Ég varð oft vitni af því í síðustu eldgosum.“ Ása var með hjartað í buxunum að fylgjast með hættulegri hegðun fólks við gosið.Ása Steinars Fólk klifrar upp á ferskt hraunið „Ég var að fljúga drónum þarna allt kvöldið með samtals ellefu batterí, þannig ég var að fylgjast með allskonar hegðun úr drónanum. Í eitt skiptið tók ég andköf og sagði við hópinn minn: Ég held að einhver muni deyja hér í kvöld. Fólk var að klifra upp á gíginn, klifra upp á ferskt hraunið. Það svo mikil hjarðhegðun í gangi held ég. Það er ekkert sem þú getur gert, björgunarsveitin vill ekki hætta lífinu sínu í að labba í gegnum gróðurelda, reyk og síðan reyna að tala þetta fólk til beint undir gígnum. Þannig þetta fór frekar mikið úr böndunum þarna, en sem betur fer hefur ekki enn farið illa.“ View this post on Instagram A post shared by Asa Steinars Iceland (@asasteinars) „Það er fullt af skiltum á leiðinni að gosinu en þegar þú kemur nær því þá eru engar upplýsingar. Þannig ég skil líka að fólk dragist að þessu sjónarspili. Þetta er soldið svona bara eins og flugur sem laðast að ljósi. Ég held að margir séu ekki að átta sig á hvar hættusvæðið liggur og það er að reyna að sjá þetta betur. Nær til 40 milljón manns Ég myndi nánast leggja til að búa til stórt skilti um hvernig á að hegða sér, svona MUST READ BEFORE ENTER, skilti til að fólk skilji hættuna. Eða þá að stjórnvöld fari að nýta sér miðla eins og mína til að miðla upplýsinum til ferðamanna. Minn Instagram aðgangur er að ná til 40 milljónir manna á mánuði og það eru um 300 þúsund manns að horfa myndböndin mín daglega þar sem ég er að pósta minni upplifun af gosinu. En samt eru alltaf farnar gamaldags leiðir í að miðla upplýsingum, eins og í gegnum sms.“ View this post on Instagram A post shared by Asa Steinars Iceland (@asasteinars) Væri gaman að sjá stjórnvöld nýta sér mátt samfélagsmiðla meira „Það þarf bara að framleiða myndbönd og fræða á samfélagsmiðlum. Það er þar sem fólk er, það er í símanum sínum. Það er ástæðan fyrir því að þau eru að fara að þessu gosi til að byrja með. Þau sjá þetta á samfélagsmiðlum. Þannig ég hef sagt þetta margoft, en það væri gaman að sjá stjórnvöld fara að nýta sér mátt samfélagsmiðla aðeins meira og koma inn á nútímann. Endilega skella sér, þetta er alltaf mögnuð upplifun.“ Ása segir það magnaða upplifun að berja gosið augum og hvetur fólk til að skella sér svo framarlega sem það sýni aðgát. Ása Steinars Endaði með kuldaskjálfta Spurð um ráð fyrir komandi gosgesti segir Ása hlýjan fatnað skipta öllu máli. „Ég myndi fara betur klædd en þú gerir ráð fyrir. Ég hélt að ég væri að klæða mig mjög vel en ég endaði með kuldaskjálfta, eftir allan svitann við að hjóla þetta og síðan standa kyrr í þessum mikla vindi. Sem betur fer var strákur sem ég þekkti með svefnpoka, þannig ég sat í honum á meðan ég flaug drónanum. Ég myndi líka klárlega mæla með að skella mér á fjallahjóli, mér fannst það gera upplifunina enn meira spennandi. Ég er allavega mjög spennt fyrir því að gosstöðvarnar opni aftur og að ég geti skellt mér.“ Áhugasamir geta fylgst með ferðalögum Ásu hér.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Tengdar fréttir Ása er með yfir 130 þúsund fylgjendur: „Margir á Íslandi vita ekki einu sinni af reikningi mínum“ Ferðaljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir er 28 ára gömul og heldur hún úti vinsælum Instagram reikningi þar sem hún deilir myndum af ferðalögum sínum og eru fylgjendurnir nærri 130 þúsund. 27. mars 2019 10:30 Feimin að eðlisfari en milljónir manna fylgjast með Ásu Steinarsdóttur er margt til lista lagt. Hún er menntaður tölvunarfræðingur og verkfræðingur en starfar núna sem áhrifavaldur í fullu starfi. Ása er meðal fremstu kvenna í heiminum á sínu sviði. Hún sérhæfir sig í ævintýramennsku, ljósmyndun og gerð myndbanda bæði fyrir sína miðla og fyrir fyrirtæki. Rætt var við Ásu í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. 22. febrúar 2023 12:29 Mest lesið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólahaldið allt í rugl þegar frumsýning er annan í jólum Menning Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Króli trúlofaður Lífið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Fleiri fréttir Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2024 Króli trúlofaður Jólagjafir íslenskra vinnustaða Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Smakkaði skötu í fyrsta sinn undir eftirliti sérfræðinga Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Hafi ekki tekið þátt í herferð gegn Lively Einn frægasti krókódíll í heimi allur Myndaveisla: Rauð jól hjá Jökli í Kaleo „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Ellen Margrét og Arnmundur orðin hjón Kolféll fyrir Amsterdam og hollenskum strák Límdi fyrir munninn á öllum við borðið „Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan Frægir fundu ástina 2024 „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Mest skreytta jólahúsið í Hveragerði Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Frægir fjölguðu sér árið 2024 Forsetinn og viðskiptavinir fengu forsmekk að Vigdísi Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Sjá meira
Ása er með yfir 130 þúsund fylgjendur: „Margir á Íslandi vita ekki einu sinni af reikningi mínum“ Ferðaljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir er 28 ára gömul og heldur hún úti vinsælum Instagram reikningi þar sem hún deilir myndum af ferðalögum sínum og eru fylgjendurnir nærri 130 þúsund. 27. mars 2019 10:30
Feimin að eðlisfari en milljónir manna fylgjast með Ásu Steinarsdóttur er margt til lista lagt. Hún er menntaður tölvunarfræðingur og verkfræðingur en starfar núna sem áhrifavaldur í fullu starfi. Ása er meðal fremstu kvenna í heiminum á sínu sviði. Hún sérhæfir sig í ævintýramennsku, ljósmyndun og gerð myndbanda bæði fyrir sína miðla og fyrir fyrirtæki. Rætt var við Ásu í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. 22. febrúar 2023 12:29