Frá þessu greinir Morgunblaðið.
„Þarna er ekki tekið á vísitölutengingu húsaleigu lengri samninga, sem er séríslenskt fyrirbæri að því leyti að leigufjárhæðin er uppfærð í hverjum einasta mánuði. Þar sem ég þekki til gerist það einu sinni á ári,“ segir Guðmundur.
Drögin voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í gær en þau fela meðal annars í sér að við ákvörðun leigufjárhæðar þegar leigusamningur er endurnýjaður á grundvelli forgangsréttar leigjanda að samningstíma loknum eigi leigufjárhæð að vera sanngjörn og eðlileg fyrir báða aðila.
Frumvarpinu er ætlað að stuðla að langtímaleigu og auknum fyrirsjáanleika hvað varðar leiguverð og sanngirni þegar kemur að breytingum á leigufjárhæð.
Drögin fela einnig í sér að óheimilt verður að semja um breytta leigufjárhæð ef samningur er til 12 mánaða eða skemmri tíma. Þetta er Guðmundur ánægður með en hann segir Leigjendasamtökin lengi hafa barist fyrir því að vísitölutenging styttri samninga verði bönnuð.