Lögreglan í New York hefur lokið rannsókn á heimili Rex Heuermann. Hann er grunaður um að hafa myrt að minnsta kosti fjórar vændiskonur og grafið lík þeirra á Gilgo Beach, nálægt Massapequa Park á Long Island þar sem hann býr. Alls hafa ellefu lík fundist á ströndinni.
Rannsóknin hefur vakið grunsemdir um að Heuermann hafi framið ódæði annars staðar og eru lögregluyfirvöld víðs vegar um Bandaríkin að skoða gömul óleyst morðmál. Það stærsta er mál í Atlantic City sem kennt er við Eastbound kyrkjarans (Eastbound strangler). Það voru fjögur morð á konum árið 2006.
Á grúfu í fráræsisskurði
Líkt og á Gilgo ströndinni voru konurnar sem drepnar voru í Atlantic City flestar vændiskonur. Þetta voru Tracy Ann Roberts 23 ára, Kim Raffo 35 ára, Barbara V. Breidor 42 ára og Molly Jean Dilts 20 ára. En hin síðastnefnda var sú eina sem ekki er vitað til að hafa stundað vændi.
Líkin fundust öll undir vatni í fráræsisskurði við Golden Key mótelið í útjaðri borgarinnar þann 20. nóvember árið 2006.
Hafði þeim verið raðað í röð með um 20 metra bili á milli og lágu líkin öll á grúfu. Allar voru þær klæddar í föt en berfættar.

Konurnar voru myrtar á nokkurra vikna tímabili. Lík Bridor og Dilts höfðu verið lengst í vatninu og voru illa farin. Þurfti tannlæknaskýrslur til þess að greina þau og ekki var hægt að segja til um dánarorsökina. Roberts og Raffo voru drepnar seinna og Raffo sást lifandi daginn áður en líkin fundust. Þær voru kyrktar til dauða með reipi eða bandi.
Enginn ákærður
Nokkrir voru yfirheyrðir í tengslum við morðin. Þar á meðal maður að nafni Terry Oleson, sem starfaði á Golden Key mótelinu. Rannsóknin endaði hins vegar í öngstræti og enginn hefur verið ákærður fyrir morðin. Lögreglan hefur boðið 25 þúsund dollara, eða rúmar 3 milljónir króna, fyrir upplýsingar sem gætu leyst málið.
Lögreglan hefur áður rannsakað hvort að tengsl séu á milli morðanna í Atlantic City og Gilgo strandarinnar. Sú kenning var slegin út af borðinu en hefur nú dúkkað aftur upp.
Heimsótti Atlantic City oft
Komið hefur í ljós að Heuermann, sem starfaði sem arkitekt, hafði tengsl við Atlantic City. Einnig Las Vegas og Suður Karólínu þar sem lögregla er einnig að athuga gömul og óleyst morðmál.
Meðal annars hefur nektardansmær í Atlantic City greint frá því að hafa séð Heuermann á staðnum sem hún vann hjá í þrjú skipti. Hann hafi reynt að fá hana til að hitta sig fyrir utan klúbbinn.
„Hann vildi að ég sæti hjá honum og talaði við hann og svo reyndi hann að sannfæra mig um að hitta sig fyrir utan klúbbinn en ég fór aldrei,“ sagði konan við fréttastöðina Fox News. „Ég hef hitt fólk fyrir utan klúbbinn áður og þekki þetta en þessi gaur lét mér líða óþægilega.“